Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. janúar 2026 12:00 Dómarinn Gil Manzano skoraði engin vinsældarstig hjá Barcelona mönnum í gærkvöld. Jose Breton/Pics Action/NurPhoto via Getty Images Barcelona tapaði 2-1 gegn Real Sociedad í gærkvöldi og Börsungar eru brjálaðir út í dómara leiksins.
Börsungar voru mun betri aðilinn í leiknum, þeir skutu fimm sinnum í stöng eða slá og komu boltanum fjórum sinnum í netið, en aðeins eitt mark fékk að standa. Eitt þeirra var réttilega tekið af og enginn mótmælti því en leikmenn Barcelona voru mjög ósáttir þegar brot var dæmt á Dani Olmo í aðdraganda marksins sem Fermín skoraði. Sérstaklega vegna þess að það virtist sem brotið hefði verið á Olmo með svipuðum hætti áður en Real Sociedad skoraði. Rangstaðan sem var dæmd á Lamine Yamal á 27. mínútu var líka afskaplega tæp. Yamal var á leið upp úr vörninni en hæll hans, eða brotabrot af honum, var enn fyrir innan. Atvikin úr leiknum má sjá í YouTube spilaranum hér fyrir neðan. Samkvæmt umfjöllun Barcelona-blaðsins Mundo Deportivo voru það samt ekki þessar stóru ákvarðanir sem fóru mest í taugarnar stuðningsmönnum og leikmönnum Barcelona, heldur „öll litlu atvikin. Hornspyrnurnar, innköstin og aukaspyrnurnar virtust bara einhvern veginn alltaf fara í aðra áttina.“ Dómarinn þurfti líka ábendingu frá VAR dómaranum til að gefa Carlos Soler rautt spjald, eftir glæfralega tæklingu í Pedri, þrátt fyrir að aðaldómarinn hafi staðið við hliðina á brotinu. Þolinmæði Börsunga var svo algjörlega á þrotum, þegar liðið var 2-1 undir í uppbótartíma í leit að jöfnunarmarki og Real Sociedad hafði tafið leikinn mikið, og dómarinn flautaði leikinn af tveimur sekúndum áður en uppbótartíminn kláraðist alveg. Frenkie De Jong, fyrirliði Barcelona, sagði dómarann hrokafullan. „Þetta var ótrúlega pirrandi. Svo máttu ekki segja neitt, þó ég sé fyrirliðinn og eigi að mega það. Hann horfir bara á þig, eins og hann langi til að segja: Ég er betri en þú“ sagði De Jong. Þjálfarinn Hansi Flick studdi fyrirliðann og sagði dómgæsluna hafa verið pirrandi, en aðallega væri hann pirraður að hafa tapað leiknum. Orri Steinn Óskarsson var ekki með sínu liði í San Sebastian þegar Barcelona kom í heimsókn í gærkvöldi. Hann er aftur að glíma við meiðsli.
Spænski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Vinicius hetjan eftir rautt spjald og líflegan grannaslag Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira