Segir rugl að ætla að ræða United Valur Páll Eiríksson skrifar 6. janúar 2026 23:31 Oliver Glasner hefur gert frábæra hluti sem knattspyrnustjóri Crystal Palace. Getty/Rob Newell „Það er ekkert vit í því“ fyrir Oliver Glasner, þjálfara Crystal Palace, að ræða laust þjálfarastarf Manchester United, að hans sögn.
Austurríkismaðurinn Glasner er efstur í veðbönkum sem nýr þjálfari United-liðsins en samningur hans við Crystal Palace rennur út næsta sumar. Glasner stýrði Crystal Palace til bikartitils síðasta vor og vann Samfélagsskjöldinn í haust. Hann hefur hlotið mikið lof fyrir starf sitt í Lundúnum eftir að hafa tekið við Palace í strembinni stöðu í febrúar 2024. Í haust hefur hann kennt þéttu leikjaprógrammi og almennu álagi um að hann hafi ekki átt almennilegar viðræður við stjórnarmenn Palace um nýjan samning. Glasner sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag í aðdraganda leiks Palace við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Líkt og við var að búast var hann spurður út starfið hjá United í ljósi þess að hann veðbankar telji hann líklegastan til að taka við. „Ég má ekki veðja svo ég skoða stuðlana ekki,“ sagði Glasner. „Ég get heldur ekki veitt innherjaupplýsingar.“ „Ég er þjálfari Crystal Palace. Það er ekkert vit í því fyrir mig að ræða þetta. Það er tímaeyðsla fyrir ykkur að spyrja mig út í þetta frekar.“ Um samningsmál sín sagði hann: „Það er hægt að skrifa undir nýjan samning. Þjálfarar í ensku úrvalsdeildinni skrifuðu undir nýjan samning í fyrra en þeir eru ekki lengur þjálfarar í deildinni í dag. Það er hægt að vinna titla en vera samt rekinn. Lengd samningsins segir lítið.“ Líkt og greint var frá á Vísi fyrr í kvöld er útlit fyrir að Ole Gunnar Solskjær taki við Manchester United tímabundið út leiktíðina á næstu dögum. Stjórnarmenn United kaupi sér þannig tíma til að finna varanlega lausn hvað þjálfaramálin varðar og finni nýjan kost fyrir næstu leiktíð.
Enski boltinn Crystal Palace FC Manchester United Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Sjá meira