Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 13. desember 2025 15:11 Húsnæðið hefur verið nýtt undir bæjarskrifstofurnar síðan 1986. Vísir/Arnar Bæjarskrifstofur Seltjarnarnesbæjar hafa verið fluttar um set í húsnæði Fangelsismálastofnunar eftir að mygla fannst í húsnæðinu í sumar. Bæjarstjóri er ánægður með nýtt húsnæði og sér ný tækifæri í því gamla.
Húsnæði bæjarskrifstofa Seltjarnarnesbæjar við Austurströnd 2 er auglýst til sölu á fasteignavef Vísis. Auglýst er eftir tilboðum í eignina, sem telur 658 fermetra. Starfsmenn fundu fyrir myglu Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, segir í samtali við fréttastofu að bæjarskrifstofurnar hafi þegar verið fluttar um nokkur húsnúmer, að Austurströnd 5. Þar var Fangelsismálastofnun áður til húsa en stendur nú í flutningum á nýjan stað. Bæjarstjórn á þó enn eftir að fá hluta húsnæðisins afhentan. „Við sitjum þarna öxl í öxl. En þröngt mega sáttir sitja,“ segir Þór. Nýja húsnæðið henti starfsemi bæjarskrifstofanna fullkomlega. Greint var frá því í júlí að mygla hefði fundist á bæjarskrifstofunum og ljóst væri að flytja þyrfti hluta starfseminnar. Þór segir þau tíðindi hafa staðfest langvarandi grun um skemmdir á húsnæðinu, enda sé húsnæðið orðið barn síns tíma. Fyrr í ár sagði hann tvo eða þrjá hafa fundið fyrir einkennum sökum myglunnar. Sjá einnig: Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Þór segir að ráðist verði í framkvæmdir á skemmdunum áður en húsnæðið verður sett í söluferli. Húsnæðið bjóði upp á tækifæri til að breyta því í íbúðarhúsnæði og þegar hafi nokkrir sýnt því áhuga.
Seltjarnarnes Mygla Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Sjö ára dómur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira