Ólöf og Írena báðar í úrvalsliði Ivy-deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. nóvember 2025 14:02 löf Sigríður Kristinsdóttir og Írena Héðinsdóttir Gonzalez stunda báðar nám við Harvard háskólann. Harvard University Íslensku knattspyrnukonurnar Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Írena Héðinsdóttir Gonzalez hafa báðar spilað stórt hlutverk hjá Harvard-skólanum og hafa nú verið verðlaunaðar fyrir frammistöðu sína á nýloknu tímabili.
Þær voru báðar valdar í annað úrvalslið Ivy-deildarinnar en þá deild skipa margir af virtustu skólum Bandaríkjanna en hinir eru Brown University, Columbia University, Cornell University, Dartmouth College, University of Pennsylvania, Princeton University og Yale University. Harvard-skólaliðið átti marga fulltrúa í úrvalsliðunum, einn í fyrsta liðinu og fimm til viðbótar í öðru liðinu. Írena var mjög traust sem varnarsinnaður miðjumaður og byrjaði alla leiki Harvard nema einn árið 2025. „Þessi þriðja árs nemi lagði sitt af mörkum um allan völl, þar á meðal í sókninni þar sem hún skoraði eitt mark og gaf eina stoðsendingu. Í vörninni hjálpaði Íslendingurinn til við að stöðva sóknarmenn andstæðinganna með sterkum varnarleik sínum. Valið í annað liðið er fyrsta All-Ivy-viðurkenning Héðinsdóttur Gonzalez á ferlinum,“ segir í frétt á heimasíðu Harvard. Ólöf Sigríður, eða Olla eins og við þekkjum hana best, var að koma til baka eftir krossbandsslit. Hún sleit krossband þegar hún var heima á Íslandi sumarið 2024 og missti af öllu 2024-tímabilinu með Harvard. Það var því mikilvægt fyrir hana að stimpla sig aftur inn. „Kristinsdóttir var valin í annað liðið í annað sinn á ferlinum, en hún skoraði þrjú mörk og gaf eina stoðsendingu árið 2025 og lagði þannig sitt af mörkum til sóknarleiks Harvard. Besta frammistaða hennar á tímabilinu var í 2-0 sigri á Princeton (27. september) þar sem hún skoraði bæði mörk Crimson-liðsins og leiddi liðið til sigurs. Fyrir þann leik var hún valin sóknarmaður vikunnar í Ivy League-deildinni,“ segir í frétt á heimasíðu Harvard. View this post on Instagram A post shared by Harvard Women's Soccer (@harvardwsoccer)
Háskólabolti NCAA Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Sjá meira