Verk Þórdísar Erlu munu prýða auglýsingaskilti borgarinnar Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 30. október 2025 15:53 Verk Þórdísar Erlu Zoëga mun prýða auglýsingaskjái borgarinnar í janúar. Vísir/Samsett Auglýsingahlé snýr aftur í janúar og fyrstu daga mánaðarins mun verk Þordísar Erlu Zoëga prýða auglýsingaskjái á flettiskiltum og auglýsingaskjám víða um höfuðborgarsvæðið.
Billboard, fyrirtækið sem rekur auglýsingaskjái í strætóskýlum og víða um borgina, efndi í haust til opinnar samkeppni um myndlistarverk í almenningsrými í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur og Y gallery. Fram kemur í tilkynningu frá Listasafni Reykjavíkur að verk Þórdísar, „Sólarhringur,“ hafi verið valið úr stórum hópi umsækjenda. Valnefndin var skipuð fulltrúum frá Listasafni Reykjavíkur, Y galleríi og SÍM. „Verk Þórdísar ,,Sólarhringur” hvetur til nýrrar hugsunar um samband manns, tækni og náttúru. Það leggur til að skjáir í borgarrými breytist með birtu dagsins og taki mið af litbrigðum sólarljóssins og áhrifum þess á himinhvolfið. Þannig verður stafræni skjárinn að sólarklukku sem sýnir takt lífsins, þar sem líftími frumunnar fylgir ljósaskiptum sólarhringsins í rauntíma,“ segir um verkið í tilkynningunni. Þórdís Erla Zoëga hefur sýnt verk sín víða. Á Íslandi hefur hún sýnt erk sín meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands, Listahátíð í Reykjavík og átt í samstarfi við Bioeffect, Hilton-hótel, Íslenska dansflokkinn og Bláa lónið svo fátt eitt sé nefnt. Þá hefur hún fengið þrjú stór opinber listaverkefni. Á Íslandi verður verkefnið Upphaf, ný varanleg innsetning sett upp við inngang nýja Landspítalans og einnig verkið Flæði við tíu innganga Heklureits, nýrrar byggingarsamstæðu í miðbæ Reykjavíkur. Þá hefur hún einnig unnið að hönnun á klæðningu 40 metra hás vatnstanks í Helsinki fyrir finnska orkufyrirtækið Fortum. Reikna má með að yfir 80% höfuðborgarbúa muni sjá verk Þórdísar dag hvern í byrjun árs 2026. Auglýsingahlé er samstarfsverkefni Billboard, Y gallery og Listasafns Reykjavíkur. Verkefnið er frábær vettvangur fyrir myndlist í almenningsrými og er því ætlað að lýsa upp skammdegið og gefa borgarbúum tækifæri á að njóta listar um alla borgina. Þeir myndlistarmenn sem áður hafa tekið þátt í verkefninu eru Hrafnkell Sigurðsson, Sigurður Ámundason, Haraldur Jónsson og Roni Horn.
Myndlist Menning Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira