Magnús Karel og Inga Lára hlutu menningarviðurkenningu Árborgar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. október 2025 16:00 Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson hlutu menningarviðurkenningu Árborgar í ár. Hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson hlutu menningarviðurkenningu Árborgar árið 2025. Þau hafa eflt menningarlíf Eyrarbakka síðustu áratugi með ljósmyndasýningum, sögugöngum, bókaútgáfu og rekstri Laugabúðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef sveitarfélagsins Árborgar. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn í Varðveisluhúsi Byggðasafns Árnesinga á sunnudag í kjölfarið á fyrirlestri þeirra hjóna um nýútkomna bók þeirra um horfin hús á Eyrarbakka, rannsóknarvinunni og niðurstöðum hennar. Bragi Bjarnason, bæjarstjóri, Inga Lára Baldvinsdóttir, Magnús Karel Hannesson og Hera Fjölnisdóttir frá Menningar- og upplýsingadeild Árborgar. „Inga Lára og Magnús eru vel að þessum heiðri komin enda hafa þau á undanförnum áratugum auðgað menningarlíf í sveitarfélaginu svo sómi er að. Má hér nefna ljósmyndasýningar, sögugöngur, bókaútgáfu og síðast en ekki síst Laugabúð, og er þó alls ekki allt upp talið,“ segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að það hafi verið einróma ákvörðun bæjarráðs Árborgar að veita hjónunum viðurkenninguna og þakka þeim um leið fyrir þeirra ómetanlega menningarstarf í þágu samfélagsins. Það var fullt hús á fyrirlestrinum. Hjónin hafa bæði sinnt ýmsum störfum á vegum Árborgar og Eyrarbakkahrepps, endurreist og rekið verslunina Laugabúð, haldið ljósmyndasýningar og gefið út bækurnar Margur í sandinn hér markaði slóð: Eyrarbakkahreppur 1897-1998, Frystihúsið: ljósmyndir 1976-1978 og Eyrarbakki: byggð í mótun - horfin hús 1878-1960. Verðlaunagripurinn var handtálguð heiðlóa eftir myndlistarmanninn Hafþór Ragnar Þórhallsson.
Árborg Menning Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira