Eggert lagði upp tvö en slæmt tap hjá liði Stefáns Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. september 2025 17:59 Eggert Aron lagði upp tvö fyrstu mörk Brann í öruggum 5-1 sigri. Eggert Aron Guðmundsson lagði upp fyrstu tvö mörkin í 5-1 sigri Brann á útivelli gegn Mjöndalen í norsku bikarkeppninni í fótbolta. Á sama tíma tapaði Sandefjord, lið Stefáns Inga Sigurðarsonar, 6-1 gegn liði úr C-deild.
Sandefjord tók bikarleikinn gegn Tromsdalen ekki mjög alvarlega, allavega af byrjunarliðinu að dæma. Enginn af byrjunarliðsmönnum dagsins byrjaði síðasta deildarleik og flestallir fastamenn liðsins voru utan hóps, þar með talinn Stefán Ingi. Stefán Ingi var ekki í leikmannahópi Sandefjord sem féll úr leik í bikarnum. Facebooksíða Sandefjord Sem heppnaðist ekki betur en svo að Tromsdalen rústaði Sandefjord 6-1. Liðið í öðru sæti C-deildarinnar heldur því áfram í næstu umferð en áttunda efsta lið úrvalsdeildarinnar situr eftir. Freyr Alexandersson gerði ekki sömu mistök og stillti upp sterku Brann liði gegn Mjöndalen, sem situr í næstneðsta sæti B-deildarinnar. Sævar Atli Magnússon var reyndar hvíldur en það dugði engu að síður til 5-1 sigurs. Freyr stýrði sínum mönnum til öruggs sigurs. Isosport/MB Media/Getty Images Eggert Aron Guðmundsson lagði fyrstu tvö mörkin upp fyrir Brann. Hið fyrra úr aukaspyrnu sem rataði á Ganverjann Nana Kwame Boakye og hið seinna með sendingu á Mads Hansen sem skaut góðu skoti yfir markmann Mjöndalen. Heimamenn minnkuðu síðan muninn í 1-2 en fengu á sig þrjú mörk til viðbótar og lokatölur urðu 1-5 fyrir Brann. KFUM Oslo komst einnig áfram í næstu umferð bikarkeppninnar, með 3-1 sigri á útivelli gegn Kongsvinger.
Norski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Fleiri fréttir Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Sjá meira