Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 12. ágúst 2025 14:32 Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrir verkinu Hamlet sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu í október. Borgarleikhúsið Kolfinna Nikulásdóttir mun leikstýra einu þekktasta og vinsælasta verki leikhússögunnar, sjálfum Hamlet, sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 31. október næstkomandi. Leikarinn Sigurbjartur Sturla Atlason, betur þekktur sem Sturla Atlas og jafnframt kærasti Kolfinnu, fer með aðalhlutverk sýningarinnar.
Kolfinna og Sturla hafa áður unnið saman að sviðslistum, í lok árs 2023 lék Sturla eitt af aðalhlutverkum í sýningunni Ást Fedru í Þjóðleikhúsinu, sem einnig var í leikstjórn Kolfinnu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Í tilkynningunni segir að Hamlet sé marglaga verk og opið til túlkunar þar sem leikstjórar og listamenn í aldanna rás hafa fundið þar gamla og nýja þræði og spunnið sögur sem tala til áhorfenda á öllum tímum. „Verkið segir af prinsinum Hamlet sem missir föður sinn á voveiflegan hátt og missir í framhaldi af því tengsl við fjölskylduna, við ástina og við sjálfan sig. Hamlet er ein kunnasta persóna leikhúsbókmenntanna, í senn elskaður og óbærilegur, réttsýnn og syndugur, tvístígandi á mörkum sjálfsskoðunar og sjálfsréttlætingar.“ Kolfinna fær til liðs við sig einvala lið leikara og listrænna stjórnenda en þýðandi sýningarinnar er Þórarinn Eldjárn. Með önnur hlutverk fara Hákon Jóhannesson, Hilmir Snær Guðnason, Hjörtur Jóhann Jónsson, Sólveig Arnarsdóttir, Vilhelm Neto og Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Búninga og leikmynd hannar Filippía Elísdóttir. Borgarleikhúsið
Leikhús Borgarleikhúsið Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun Beint flug til Portó Lífið samstarf HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira