Formúla 1

Sagði bíl Red Bull vera al­gjör­lega óöku­hæfan

Siggeir Ævarsson skrifar
Heimsmeistarinn Max Verstappen er ekki sáttur með bílinn sinn
Heimsmeistarinn Max Verstappen er ekki sáttur með bílinn sinn Vísir/Getty

Heimsmeistarinn Max Verstappen, sem hafði mikla yfirburði í Formúlu 1 á síðasta tímabili, hefur ekki náð sömu hæðum í fyrstu tíu keppnum ársins en hann er ekki á eitt sáttur með bílasmiðinn Red Bull.

Verstappen varð sjöundi í tímatökum í gær en á einum tímapunkti sagði hann í talstöðinni að bíllinn væri svo gott sem óökuhæfur:

„Bíllinn er algjörlega óökuhæfur. Ég er ekki með neitt grip.“

Vonbrigði Verstappen voru sérstaklega mikil í ljósi þess að Red Bull hafði uppfært bílinn fyrir keppnina og endurbætt hönnunina á neðri hluta bílsins sem átti að laga jafnvægisvandamálið sem liðið hefur glímt við allt tímabilið en Verstappen sagði að hinar meintu endurbætur hefðu einfaldlega gert illt verra.

Á blaðamannafundi eftir tímatökurnar var hljóðið í Verstappen þó ögn betra.

„Á morgun getum við vonandi í það minnsta verið samkeppnishæfir við Ferrari og Mercedes. En ég er samt ekki viss, því vandamálið með jafnvægið sem við vorum að glíma við í tímatökunni verður ekki komið í lag á morgun en við munum fara vel yfir allt og reyna að greina vandamálið.“

Austurríkiskappasturinn hefst klukkan 13:00 í dag og bein útsending á Sýn Sport Viaplay hefst klukkan 12:30.


Tengdar fréttir

Norris á rá­spól á morgun með yfir­burðum

Lando Norris, ökumaður McLaren, var langhraðastur í tímatökunum fyrir Austurríkiskappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer á morgun en hann var næstum hálfri sekúndu fljótari en næsti maður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×