Lífið

Lilja Sif Péturs­dóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Lilja Sif Pétursdóttir með kórónuna ásamt Manúelu Ósk Harðardóttur, eiganda og stjórnanda Ungfrúar Ísland.
Lilja Sif Pétursdóttir með kórónuna ásamt Manúelu Ósk Harðardóttur, eiganda og stjórnanda Ungfrúar Ísland.

Lilja Sif Pétursdóttir, fulltrúi Íslands í alþjóðlegu fegurðarsamkeppninni Miss Supranational 2025, var í gærkvöld krýnd Miss Supranational Europe sem efsti evrópski keppandinn. Einnig hlaut hún verðlaun sem myndfríðasti keppandinn.

Keppnin var haldin í sextánda sinn í gær í Nowy Sącz í Póllandi þar sem konur frá 66 löndum kepptu til úrslita. Sigurvegari keppninnar var hin brasilíska Eduarda Braum og er það í fyrsta sinn sem Brasilíu vinnur keppnina.

Lilja Sif komst fyrst áfram í 24 stúlkna úrslit og þaðan í 12 stúlkna úrslit. Veitt eru fimm heimsálfuverðlaun fyrir þann sem endar efstur í sinni álfu og endaði Lilja efst meðal Evrópubúa og hlaut fyrir vikið titilinn Miss Supranational Europe 2025. Hún er þar með orðin opinber fulltrúi Evrópu innan keppninnar.

Lilja ásamt íslenska teyminu.

Auk þess hlaut Lilja titilinn Miss Photogenic 2025 sem er veittur myndfríðasta keppandanum, það er þeim sem tekur sig best út fyrir framan myndavélina, hverju sinni.

„Ég á erfitt með að lýsa þessari stund. þetta er ótrúleg viðurkenning og mér þykir óendanlega vænt um stuðninginn sem ég hef fengið frá fólki frá öllum heimshornum. Ég vona að þetta sé hvatning til annarra ungra kvenna að fylgja draumum sínum,“ sagði Lilja Sif eftir úrslitin.

„Þetta er ólýsanleg stund. Lilja hefur lagt hjarta sitt og sál í undirbúninginn og sýnt að íslenskur kraftur skín í gegn á alþjóðlegum vettvangi. Við erum ótrúlega stolt af henni – þetta er sigur fyrir hana, fyrir okkur öll og fyrir Ísland,“ sagði Manuela Ósk Harðardóttir, eigandi Ungfrú Ísland, sem var stödd í salnum.

Lilja Sif Pétursdóttir var valin Ungfrú Ísland árið 2023 og keppti í kjölfarið í Ungfrú heimi sama ár. Hún starfar á hjúkrunarheimili samhliða þátttöku sinni í ýmsum fegurðarkeppnum og viðburðum þeim tengdum.


Tengdar fréttir

Keppti fyrir hönd fjöl­fatlaðrar systur sinnar

Lilja Sif Pétursdóttir sigraði keppnina Miss Universe Iceland fyrir skemmstu. Hún er elst í sex systkina hópi en ein af systrum hennar er fjölfötluð sem er ástæða þess að Lilja starfar í dag á hjúkrunarheimili. Í framtíðinni dreymir Lilju um að geta hjálpað þeim sem minna mega sín. 

Upp­lifði mar­tröð fegurðar­drottningarinnar

Fegurðarsamkeppnin, Miss Universe er haldin í 72 sinn og fer keppnin fram í El Salvador. Lilja Sif Pétursdóttir keppnir fyrir Íslands hönd en á lokaæfingunni upplifði hún martröð allra fegurðardrottninga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.