Innlent

Bein út­sending: Ís­land og Norður­slóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, á­skoranir og tæki­færi

Atli Ísleifsson skrifar
Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu í Reykjavík og fer fram milli klukkan 9 og 16.
Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu í Reykjavík og fer fram milli klukkan 9 og 16. Getty

Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst stendur fyrir ráðstefnu um málefni Norðurslóða milli klukkan 9 g 16 í dag. Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Í tilkynningu segir að aukinn áhugi Bandaríkjanna á landsvæðum Norðurslóða eins og Kanada og Grænlandi hafi breytt heimsmyndinni umtalsvert á skömmum tíma, ekki síst hér á Norðurslóðum. 

„Sú breytta sýn á stöðu svæðisins í alþjóðasamfélaginu krefst endurmats á stefnumótun Norðurslóðasamfélaga í öryggis- og varnarmálum. Kemur þar margt til álita sem lýtur að lífsháttum, almannaheill, umhverfisþáttum og fleiru.

  • Hvernig bregðast Norðurslóðaríkin við í þessum aðstæðum?
  • Hver er staða okkar í þessari breyttu heimsmynd?
  • Hvaða skref er farsælast fyrir okkur að stíga?
  • Hvernig getur vísinda- og háskólasamfélagið á Norðurslóðum komið að gagni?

Meðal annars verður rætt um netógnir og umhverfishættur, öryggisskipulagningu og ákvarðanatöku, viðbúnað og hugsanlega aukna hernaðarviðveru. Fyrirlesarar koma úr ýmsum áttum og fjalla um málefnið frá ýmsum hliðum.

Hægt er að fylgjast með ráðstefnunni í beinu streymi í spilaranum að neðan. 

Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri.

  • Fyrirlestur: Borgaralegir öryggishagsmunir

Auðunn Kristinsson, framkvæmdastjóri stefnumörkunar, áætlana og þróunar aðgerða hjá Landhelgisgæslunni.

  • Fyrirlestur: Áherslur og verkefni Landhelgisgæslunnar á sviði öryggis- og varnarmála.

Dr. Bjarni Már Magnússon, prófessor og deildarforseti lagadeildar við Háskólann á Bifröst.

  • Fyrirlestur: Varnartengd verkefni Landhelgisgæslunnar og aðgreiningarskylda alþjóðlegs mannúðarréttar.

Dr. Eiríkur Bergmann, prófessor og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst.

  • Fyrirlestur: Norðurslóðir í nýjum veruleika: Ógn úr austri, óvissa í vestri og innri klofningur

Dr. Gregory Falco, dósent við Cornell University og stundakennari við Háskólann á Bifröst.

  • Fyrirlestur: Iceland and the Arctic in a new perspective. Threats and security, challenges.

Dr. Magnús Árni Skjöld, dósent og stjórnmálafræðingur við Háskólann á Bifröst.

  • Fyrirlestur: Hlutverk Íslands í vörnum Evrópu / Iceland’s Strategic Role within European and Transatlantic Frameworks

Nathan Stackhouse, MA Norðurslóðasérfræðingur og yfirmaður öryggismála hjá Bandaríska flughernum.

  • Fyrirlestur: Iceland and the Art of the Deal

Dr. Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Lagadeild HA og þátttakandi í Arctic Initiative.

  • Fyrirlestur: Vísindasamfélagið og Norðurslóðir

Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, stýrir pallborði I - Hlutverk og möguleikar vísindasamfélags og þekkingarsköpunar í harðnandi heimsmynd.

Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttastjóri, stýrir pallborði II - Pólitískt umhverfi, öryggis- og varnarmál Norðurslóða.

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og deildarforseti Félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst er ráðstefnustjóri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×