Golf

Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods með móður sinni Kultidu Woods þegar hann var tekinn í Heiðurshöllina árið 2022.
Tiger Woods með móður sinni Kultidu Woods þegar hann var tekinn í Heiðurshöllina árið 2022. Getty/Sam Greenwood

Bandaríski atvinnukylfingurinn Tiger Woods hefur hætt við að taka þátt í golfmótinu á Torrey Pines en þetta mót hans er hluti af PGA mótaröðinni.

Ástæðan eru þó ekki meiðsli eins og oft áður heldur segist Woods enn vera að vinna sig út úr því að hafa misst móður sína á dögunum.

Tiger Woods sagði frá ákvörðun sinni á samfélagsmiðlum sínum.

Mótið hefst á fimmtudaginn og voru margir spenntir að sjá Woods spila. Þetta er auðvitað hans eigið golfmót.

„Ég ætlaði að keppa í þessari viku en ég er bara ekki tilbúinn. Ég gerði mitt besta til að undirbúa mig og það væri það sem móðir mín hefði viljað. Ég er bara enn að átta mig á þessu,“ skrifaði Woods.

„Ég vil þakka öllum sem höfðu samband. Ég vonast til að mæta á Torrey seinna í vikunni og vil þakka öllum fyrir stuðninginn og þann hlýhug sem mér hefur verið sýnt,“ skrifaði Woods.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×