Innlent

„Var lifandi og skemmti­legur en ömur­legt hvernig fór“

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Jónas Björn Sigurgeirsson birti þessa mynd á Facebook af sér og Edward Pettifer sem lést í hryðjuverkaárásinni í New Orleans á nýársdag.
Jónas Björn Sigurgeirsson birti þessa mynd á Facebook af sér og Edward Pettifer sem lést í hryðjuverkaárásinni í New Orleans á nýársdag. Mynd/Jónas

Jónas Björn Sigurgeirsson, bókaútgefandi og eiginmaður Rósu Guðbjartsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins, segir Edward Pettifer sem lést í hryðjuverkaárásinni í New Orleans á nýársdag hafa verið einstaklega skemmtilegan mann með frábært skopskyn.

Jónas birti mynd af þeim félögunum saman í gær á Facebook-síðu sinni en þeir kynntust í veiði í Selá þar sem Pettifer starfaði sem leiðsögumaður. Eyddu þeir þremur dögum saman þar sem þeir ræddu heima og geima að sögn Jónasar. Pettifer starfaði á Íslandi nokkur sumur í laxveiðiám og dvaldi á landinu um nokkra vikna skeið að hverju sinni. Sjá má færslu Jónasar neðar hér í fréttinni.

„Ég setti þetta í rauninni bara inn því mér finnst svo magnað hvað heimurinn er lítill. Þetta var bara gæðadrengur, hann var lifandi og skemmtilegur en ömurlegt hvernig fór. Hann var alveg ofboðslegur stangveiðimaður,“ segir Jónas í samtali við Vísi.

Bretakonungur vottaði fjölskyldunni samúð

Eins og greint hefur frá vottaði Karl Bretakonungur fjölskyldu hins 31 árs gamla Pettifer samúð. Hann var sonur Alexöndur Pettfier, barnfóstru Harrys og Vilhjálms Bretaprins. Pettifer er sagður hafa látist af völdum áverka sem hlutust þegar bílnum var ekið á fólkið í þvögunni í New Orleans á nýársdag.

Árásarmaðurinn Shamsud-Din Bahar Jabbar, 42 ára maður frá Texas, var skotinn til bana af lögreglumönnum eftir að hann hafði ekið inn í mannfjölda á Bourbon-stræti. Starfsmenn alríkislögreglunnar segja liggja fyrir að hann hefði verið innblásinn af Íslamska ríkinu en voðaverkið er rannsakað sem hryðjuverk.

Hokinn af reynslu

Jónas segir að Pettifer hafi verið hokinn af reynslu þrátt fyrir ungan aldur og vísar til hans sem framúrskarandi stangveiðimanns. 

„Hann var mikið náttúrubarn og elskaði að veiða. Hann var mikill húmoristi og grínaðist mikið.“

Færsla Jónasar í heild sinni.skjáskot

„Ég sá hann fyrst í flugvélinni á leið til Vopnafjarðar, glaðbeittan og skrafhreifinn náunga,“ segir í færslu Jónasar en hann tekur fram að Pettifer hafi talað vel um Karl Bretakonung. 

„Góður drengur, léttur í lund, enskur í öllum háttum og hógvær. Nú er hann allur af því að einhver bandbrjálaður íslamskur hryðjuverkamaður ákvað að aka yfir fólk á nýársgleði í New Orleans. Blessuð sé minning Edward Pettifer.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×