Barnamálaráðherra keypti fyrsta Jólaálfinn SÁÁ 27. nóvember 2024 10:52 Sala Jólaálfs SÁÁ er hafin en álfurinn er seldur til að styrkja sálfræðiþjónustu barna hjá SÁÁ. Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra keypti þann fyrsta í húsakynnum samtakanna í gær en sala Jólaálfsins stendur fram á laugardag.
Tekjum af sölunni á Jólaálfinum er að þessu sinni ætlað að styðja við sálfræðiþjónustu SÁÁ fyrir börn sem alast upp við fíknsjúkdóm á heimilinu. Ráðuneyti mennta- og barnamála styrkir sálfræðiþjónustuna en að auki niðurgreiðir SÁÁ hana með sjálfsaflafé á borð við álfasöluna. Mikil eftirspurn er eftir sálfræðiþjónustunni. Árlega sinnir SAÁ um 200 börnum auk þess að veita foreldrum og fjölskyldum fræðslu og stuðning. Aldís María Sigursveinsdóttir afhendir Ásmundi Jólaálfinn, en Aldís leikur og syngur aðalhlutverkið í nýju myndbandi SÁÁ. Með sálfræðiþjónustunni hjálpar SÁÁ börnunum til að takast á við erfiðar tilfinningar, skömm, reiði, áhyggjur og vanmátt sem fylgir því að fullorðinn á heimilinu glími við fíknsjúkdóminn. Börnin fá fræðslu við hæfi um fíknsjúkdóminn og leiðir til að vinna með kvíða og tilfinningar sem tengjast því að alast upp við slíkar aðstæður. Viðtölin miða að því að styrkja sjálfsmynd barnanna og stuðla í leiðinni að forvörnum enda geta börnin sjálf verið í hættu að þróa með sér fíknsjúkdóminn.
SÁÁ Mest lesið Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Samstarf Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Viðskipti innlent Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Viðskipti innlent Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Atvinnulíf Svandís tekur við Fastus lausnum Viðskipti innlent Ríkið eignast hlut í Norwegian Viðskipti erlent Fleiri fréttir Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent