Áður hafði Vísir unnið umfjöllun um þá ilmi sem konur í framboði nota. Meðal þeirra sem svöruðu var Svandís Svavarsdóttir formaður VG en sérstaka athygli vekur að hún og Snorri Másson frambjóðandi Miðflokksins nota sama ilmvatnið. Þau Svandís eru sammála um fátt líkt og fram hefur komið í aðdraganda þessara kosninga en deila þó þessu.
Logi Einarsson -Samfylkingin

„Fágun og velgengni“
Logi, oddviti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, notar rakspírann Prada Black.
„Aðlaðandi ilmur fyrir fágaða manninn sem vill standa sig á öllum sviðum lífsins,“ segir um ilminn á vef Hagkaups.

Bjarni Benediktsson - Sjálfstæðisflokkurinn

„Afslöppuð og kynþokkafull stemning“
Þessa dagana er BB að nota Tom Ford Costa Azzurra sem hann fékk að gjöf frá Þóru sinni
„Costa Azzura fangar hina afslöppuðu og kynþokkafullu stemmningu við Miðjarðarhafið, sameinar ferskleika sjávarloftsins við hita sólarinnar á líkamanum. Augnablik af hrífandi sjávarlofti blandar seltu við skógarilm af sandöldum. Hrein blanda af cypress eik og imefni. Eins og sól á blautri húð, sítrus birtir upp furuköngla og nálar í kjarna ilmsins,“ segir um ilminn á vef Lyfju.

Orri Páll Jóhannsson - Vinstri græn

„Ferskur
Orri Páll, segist sjaldan nota rakspíra en þegar tilefni gefst notar hann ilminn frá Acqua Di Gio, Giorgio Armani.
„Ferskur ilmur sem svíkur engan. Ilmur fyrir framtíðina sem uppfyllir gildi nýrrar kynslóðar og ber virðingu fyrir umhverfinu,“ segir í lýsingu um ilminn á vef Hagkaups.

Arnar Þór Jónsson - Lýðræðisflokkurinn

„Fágaður ilmur“
Arnar Þór, oddviti Lýðræðisflokksins, notar ilminn: Grafton frá Truefitt & Hill.
„Fágaður ilmur þar sem meðal topptóna eru lavender, límóna og basilika en meðal grunn- og hjartatóna eru kanill, leður, sandalviður, tonka og raf. Nafnið er til heiðurs Grafton herskipunum í breska hernum sem hafa borið þetta nafn frá 17. öld,“ segir um ilminn á vefsíðunni Herramenn.is

Snorri Másson- Miðflokkurinn

„Djúpur, ferskur og ógleymanlegur“
Snorri notar ilm nr. 23 frá Fisher sund. Ilmurinn einkennist af dýpt og ferskleika og er sagður ógleymanlegur fyrir þá sem fá að finna hann. Þess má geta að Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra og formaður VG, notar sama ilm líkt og kom fram í síðustu umfjöllun Vísis.

Jón Gnarr - Viðreisn

„Kryddaður og eldheitur“
Jón Gnarr notar ilm frá Black pepper, comme de garcon.Ilmurinn er hlýr og djúpur, með blöndu af kryddum, viðartónum og sætum keim. Krydduð blanda af þurrkuðum pipar frá Madagaskar, eldheitum Cedarvið og ilmandi Akigalavið rennur saman við sætar karamelíseraðar tonka baunir. Dulúðlegur og heillandi ilmur.

Ásmundur Einar Daðason- Framsókn

„Vinsæll og ferskur“
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra Íslands, alþingismaður Framsóknarflokksins í Reykavíkurkjördæmi Norður, notar ilminn Acqua di Gió sem er mest seldi ilmur frá Giorgio Armani.
„Náttúran, sjórinn og ferskleikinn ræður ríkjum. Ítalskt bergamot, neroli og græn mandarína. Léttir tónar hafsins blandast jasmínlaufi, rósmarín og persimónu auk hlýju indónesísku patchouli sem gerir ilminn bæði ferskann og nautnalegan,“ segir um ilminn á vef Hagkaups.

Eyjólfur Ármannsson - Flokkur fólksins

„Ferskur og karlmannslegur“
Eyjólfur, oddviti Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, notar ilm frá Hugo Boss, Tonic.
„Óviðjafnanlegi Boss andinn fær ferskt, karlmannlegt ívafi í Boss Bottled Tonic. Þessi endurnærandi ilmur felur í sér kjarna þessara einstöku augnablika skýrleika sem veita þér ró og æðruleysi til að endurskipuleggja hugsanir þínar og byrja aftur.“

Frambjóðendur sem ilma náttúrulega
Björn Leví Gunnarsson Pírati og Gunnar Smári Egilsson, oddviti Sósíalista í Reykjavíkurkjördæmi norður, segjast ekki nota neinn rakspíra.

