Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 8. október 2024 10:28 Kynlífsmarkþjálfinn Kristín Þórsdóttir ræddi við blaðamann. Aðsend „Allt tal um kynlíf var mikið tabú þá og ég þorði ekki að fara á móti straumnum,“ segir kynlífsmarkþjálfinn Kristín Þórsdóttir sem vissi frá unglingsaldri að hún hefði áhuga á því að vera kynfræðingur. Hún rekur í dag fyrirtækið Eldmóður og stendur fyrir námskeiðinu Kveiktu á þér fyrir þig. Blaðamaður ræddi við Kristínu um kynlífsmarkþjálfunina og tilveruna.
Þorði fyrst ekki að fara á móti straumnum Kristín segir að hennar helsta ástríða sé hvernig við getum tengst sjálfum okkur og líkama okkar á dýpri hátt. „Hver við erum þegar við látum grímurnar okkar falla niður, sitjum með sjálfum okkur og finnum fyrir kjarnanum. Hvernig við getum öðlast hugrekki til þess að fara okkar eigin leiðir og fylgja hjartanu okkar, neistanum og löngun.“ Þegar Kristín var unglingur langaði hana alltaf að verða annað hvort kynfræðingur eða hársnyrtir. „Allt tal um kynlíf var mikið tabú þá og því valdi ég hársnyrtinn, ég þorði ekki að fara á móti straumnum. Þegar að ég fór og lærði markþjálfun kviknaði smá ljós innra með mér og hugsaði: Ætli það sé hægt að verða kynlífs markþjálfi? Ég fór á stúfana og fann að það er bara kennt erlendis. Það varð til þess að ég fór í tveggja ára fjarnám frá Kaliforníu í Sexcoach. Ég útskrifaðist þaðan í febrúar 2021.“ Kristín Þórsdóttir fann sig í kjölfar þess að læra markþjálfann og lauk námi í kynlífsmarkþjálfun frá Kaliforníu.Aðsend Skortur á fræðslu í tengslum við áhrif sjúkdóma á kynhvöt Hún segir umræðuna varðandi kynlíf opnari í dag en hún var á hennar yngri árum. „Enn eigum við þó langt í land. Þá er ég ekki endilega að tala um að allir eigi að vera tala um kynlífið sitt við alla heldur að það sé ekki tabú að leita sér aðstoðar ef eitthvað er að eða þarf að vinna með. Ég hef mikið unnið með fólki sem hefur fengið krabbamein og mér finnst alltaf jafn skrítið að það sé til dæmis ekki meiri fræðsla fyrir fólk varðandi áhrif sjúkdóms og meðferðar á kynhvöt, samlíf og nánd. Þetta á í rauninni við alla sjúkdóma, nándin er svo mikilvæg þó svo að kynlíf sé ekki valkostur á einhverjum tímapunkti. Ég upplifi oft að fólk sé pínu hissa þegar að það spyr mig hvað ég vinni við. Oft er fólk líka forvitið og vill vita meira og er bara jákvætt fyrir þessu. Eflaust eru margir með fordóma en eins og ég hef alltaf sagt að þá eru fordómar oft byggðir á fáfræði. Ég stend með öllu því sem að ég segi og brenn fyrir og fólk verður þá bara að eiga það við sig. Þegar maður velur sér þennan starfsvettvang lærir maður það fljótt að láta ekki álit annarra setja sig út af laginu.“ Kristín stendur á öllu sem hún segir og brennur fyrir og segir að fólk verði bara að eiga það við sig sé það með einhverja fordóma.Aðsend Valdeflandi að þekkja snípinn betur Hún segist upplifa mikla og jákvæða breytingu á sambandinu við sjálfa sig í gegnum starf sitt. „Í náminu fórum við í mikla sjálfsskoðun, við unnum með áföllin okkar ef einhver voru, skoðuðum það sem er kallað sexual history og fórum djúpt inn að kjarna. Einnig fannst mér það líka mjög valdeflandi að læra allt um líkamann. Því meira sem maður lærir því meira skilur maður líkama sinn. Það að maður hafi sem dæmi ekki fengið fræðslu um það hvernig snípurinn lítur út er pínu galið. Því hann er þó nokkuð stór og er ekki bara það sem við sjáum útvortis. Margar konur hafa talað um að það að hafa fengið fræðslu um hann sé valdeflandi og auki þekkingu okkar á líkamanum okkar og eigin unaði.“ Lærði að skoða langanir og þrár Kristín stendur fyrir námskeiðinu Kveiktu á þér fyrir þig og hefst það á morgun. Er um að ræða fjögurra vikna námskeið fyrir konur. „Í náminu var skylda að fara á það sem kallast SAR training sem var haldið í Póllandi og er fyrir alla þá sem að ætla útskrifast sem kynfræðingar eða kynlífsmarkþjálfar. Eftir SAR fór ég í sex daga námskeið sem kallaðist ASPEX. Þar vorum við mjög mikið að vinna með það að skoða hver við erum sem kynverur, langanir okkar og þrár. Þar lærði ég ótrúlega margt gagnlegt og því fannst mér tilvalið að búa til námskeið sem að inniheldur margt af því sem að ég lærði þar. Ég hugsaði með mér að fyrst að þetta gagnaðist mér og þrjátíu öðrum einstaklingum sem voru með mér þarna væri það örugglega að fara hjálpa fleirum. Út frá þeim stað varð þetta námskeið Kveiktu á þér fyrir þig til. Ég er núna að fara halda þetta námskeið í tíunda sinn og hef hingað til fengið frábærar viðtökur.“ Kristín er að halda námskeiðið Kveiktu í þér fyrir þig í tíunda sinn.Aðsend Breytingaskeið, áföll, lyf, skömm og Netflix geti haft áhrif Aðspurð hvað hún haldi að aftri fólki helst við að vera í tengslum við eigin kynveru segir Kristín: „Ég held að það sé fyrst og fremst tímaleysi og streita. Hraðinn í samfélaginu og kröfurnar eru svo ótrúlega miklar. Svo hefur sjálfsmyndin ótrúlega mikil áhrif. Ef við erum ekki sátt í eigin skinni og í niðurrifi getur verið erfitt að tengjast sér sem kynveru. Svo eru ótrúlega margir þættir sem að geta líka spilað inn í, eins og til dæmis hormón, þá sérstaklega þegar að konur eru á breytingaskeiðinu, áföll, lyf, skömm og fleira. Á námskeiðunum hjá mér var samt stór samnefnari með konum. Að þær hreinlega viti ekki hvað þeim finnst gott, líkaminn hefur breyst og hugurinn oftast á fleygiferð út af álagi. Oft varð Netflix betri kostur. Því finnst mér mikilvægt að geta boðið upp á svona námskeið sem gefur konum rými til þessa að setjast aðeins niður og hugsa inn á þetta. Aðal spurningin er: Langar þig til að langa? Kannski finna konur ekki fyrir mikilli kynhvöt og eru sáttar með það, þá er þetta kannski ekki rétta námskeiðið fyrir þær. En ef þær langar til þess að þá mæli ég með að koma.“ Hér má nálgast nánari upplýsingar um námskeiðið.
Kynlíf Mest lesið Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Lífið Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Lífið Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Lífið Ný viðbygging við Þjóðleikhúsið „langþráður draumur“ Menning HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Lífið Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Lífið Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart Lífið Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Lífið Fleiri fréttir Serena Williams opnar sig um notkun þyngdarstjórnunarlyfja Fréttatía vikunnar: Svíþjóð, sektir og vextir Bjargaði lífi systur sinnar ellefu ára gömul Níu ástæður fyrir því að stunda morgunkynlíf Bragðgóðar kalkúnabollur í kókos og límónusósu Hörður Björgvin kom Móeiði á óvart HAF-hjónin breyta vídjóleigu í bakarí Ari og Helga Lilja flytja á milli glæsihúsa í Garðabæ Mamman grét, eiginmaðurinn fraus en Veru var létt Innlit í nýtt svefnhólfahótel við Hverfisgötu Millie Bobby Brown og Bongiovi hafa ættleitt stúlku Fullkomið og fór langt fram úr væntingum Þungarokkstjarna lést í mótorhjólaslysi Lil Nas X handtekinn og vistaður á sjúkrahúsi Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Tvö maraþon eftir af sex: Úr þoku í sól, misörlátir ferðamenn og hálendið kvatt „Sjúllaður“ sítrónu og jarðaberja næturgrautur Draumadís Þórhildar og Hjalta komin í heiminn Svona verður dagskráin á Menningarnótt Breskur auðkýfingur brjálaður og norsku kafararnir of dýrir Nafn sonarins innblásið af Frakklandi Súrrealískt þegar Jay Leno vinkaði fjölskyldunni á Facetime Borgarstjóri fagnaði brúðkaupsafmæli með strætóferð og indverskum mat Svarar samskiptastjóra Trump sem kallaði hann lúser Þetta borðar Lína Birgitta alla morgna „Indælasti dómari í heimi“ er látinn Seiðandi víbrur sem virka í bólinu Þegar Jónas var jarðsettur hundrað árum eftir andlátið Ein frægasta bakrödd landsins gifti sig „Pylsa“ sækir í sig veðrið Sjá meira