Það var líf og fjör á sýningaropnun á Humarhátíð í Hornafirði.Tim Junge
Föstudaginn 28. júní opnaði sýningin Nr. 5 Umhverfing með pompi á prakt á Humarhátíð á Höfn í Hornafirði. Sýningin er með 52 listamönnum og nær yfir meira en 200 kílómetra svæði með fjölda listaverka bæði innanhúss og utandyra.
„Að sýningunni standa meðlimir í Akademíu Skynjunarinnar, þær Anna Eyjólfs, Þórdís Alda Sigurðardóttir og Ragnhildur Stefánsdóttir. Þetta er í fimmta sinn sem sýning með nafnið Umhverfing opnar en áður hafa þær skipulagt og gefið út bækur um Umhverfingu á Skagafirði, Egilsstöðum, Snæfellsnesi og Vestfjörðum.
Í þetta sinn er samsýningin samstarf með Listasafni Svavars Guðnasonar sem rekið er af safnverðinum Snæbirni Brynjarssyni, en það heyrir undir Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Opnun þessarar viðamiklu og stærstu listasýningar í sögu Hornafjarðar fór fram í Gömlubúð en það er elsta húsið á Höfn og var flutt þangað úr Papafirði yfir fjöll og vötn þegar Höfn var reist árið 1897.
Sjaldan hefur jafn mikið af fólki komið saman í Gömlubúð, en um veitingar á viðburðinum sá sjónvarpskokkurinn og fjöllistamaðurinn Kristinn Guðmundsson,“ segir í fréttatilkynningu.
Hér má sjá myndir frá opnunarteitinu:
Anna Eyjólfs, Þórdís Alda Sigurðard, Snæbjörn Brynjarsson, Eyrún Ævarsdóttir, Ragnhildur Stefánsd og Hanna Dís Whitehead.Tim JungeÁróra Gústafsdóttir og Spessi.Tim JungeÁróra Gústafsdóttir og Svava Kristbjörg Guðmundsdóttir virða fyrir sér vegginn.Tim JungeÁstríður Sveinbjörnsdóttir spjallaði við sýningargesti.Tim JungeÁhorfendur á vídjóverki Ósk Vilhjálmsdóttur.Tim JungeAnna Eyjólfs formaður SÍM opnar Nr. 5 Umhverfing.Tim JungeArna og Matthildur fyrrum bæjarstjóri Ásmundardætur.Tim JungeÁróra Gústafsdóttir skólastjóri í Öræfum.Tim JungeSnæbjörn Brynjarsson og einn fyrrverandi safnvörður og listakonan Hanna Dís Whitehead. Hún opnaði sömuleiðis einkasýningu á Höfn um helgina.Tim JungeEyrún Axelsdóttir frá Hrafnavöllum og Lísa Þorsteinsdóttir spjalla við Þórdísi Öldu Sigurðardóttur.Tim JungeEva og Ægir.Tim JungeSýningargestir í lyftu.Tim JungeÞað var margt um manninn á opnuninni.Tim JungeKristinn Guðmundsson sjónvarpskokkur segir frá veitingunum.Tim JungeKvikmyndaleikstjórinn Hlynur Pálmason spjallar við Harald Jónsson myndlistarmann, í bakgrunni sést Sigrún Brynjarsdóttir.Tim JungeMaría Sjöfn Dupuis og Eva Bjarnadóttir.Tim JungeMaría Sjöfn Dupuis, Ósk Vilhjálmsdóttir og Eygló Harðardóttir listamenn.Tim JungeMyndlistarkonan Rúrí fremur hér gjörning.Tim JungeLjósmyndararnir Spessi og Lovísa Fanney Árnadóttir.Tim JungeListamennirnir Kristinn Guðmundsson, Haraldur Jónsson og Halldór ÁsgeirssonTim JungeListamennirnir Ragnhildur Stefánsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir og Margrét Blöndal.Tim JungeSpessi og Ragnhildur Stefánsdóttir.Tim JungeSunginn var afmælissöngur fyrir stöllurnar Ragnheiði Bjarnarson og Ragnhildi Stefánsdóttur.Tim JungeSnæbjörn Brynjarsson safnvörður á Svavarssafni býður gesti velkomna.Tim JungeSpessi og Eyrún Axelsdóttir snúa bökum saman.Tim Junge