Síðan rafmagnsjeppinn Tesla Cybertruck var frumsýndur árið 2019 hafa margir beðið spenntir eftir því að bíllinn komi á markað. Búið er að afhenda um tíu þúsund eintök í Bandaríkjunum.
Bíllinn er heljarinnar smíði og hafa margir beðið í ofvæni eftir honum. Áhugasamir geta mætt í Tesla-umboðið um helgina og skoðað hann, en hann verður þar til sýnis frá föstudegi til sunnudags.
Þrátt fyrir að bíllinn sé ekki kominn á Evrópumarkað hefur eintakið sem þið sjáið hér flakkað um álfuna síðustu vikur og verið til sýnis. Bíllinn er dystópískur í útliti og líkist að einhverju leyti teikningu leikskólabarns.

Bíllinn er hannaður fyrir bandarískan markað og því allt við hann í bandarískum hlutföllum. Til dæmis er rúðuþurrkan ein og sér, einn og hálfur metri. Og þar sem bíllinn er ekki hannaður fyrir evrópskan markað telja einhverjir að hann muni ekki standast kröfur Evrópusambandsins, til að mynda vegna þess hvernig hann er í laginu. Ekki er búið að reyna að fá leyfi til að selja bílinn hér. En hvernig er að sitja í bílnum?
„Þetta er rosalega mikill bíll, þeir eru það reyndar hinir líka. En þessi er bæði stærri og svona mjög framtíðarlegur í útliti. Spennandi þannig. Gríðarlega rúmgóður bíll og spennandi sem jeppi,“ segir Friðrik Pálsson, mikill áhugamaður um Tesla-bíla og einn af fyrstu Tesla-eigendunum á Íslandi.

Þér líst bara vel á þetta?
„Mér líst mjög vel á þetta.“
Ertu búinn að panta eintak?
„Ó já.“

Gangandi vegfarendur göptu þegar bílnum var ekið framhjá þeim og rak í rogastans þegar þeir áttuðu sig á því hvaða bíll var þarna á ferðinni. Friðrik er einnig dolfallinn.
Fyrsta orðið sem kemur í hugann?
„Fullkomið,“ segir Friðrik.

Það er ekki flóknara en það?
„Nei, mér finnst það ekki. Mér finnst þetta alveg geggjað.“