Sýningin heitir Hlutskipti og eru listaverkin í blönduðum miðlum, videói, skúlptúr og handmáluðum ljósmyndum. Systurnar eru báðar miklir reynsluboltar í heimi listarinnar og hafa sýnt verk sín víða, bæði erlendis og hérlendis.

„Lilja hefur unnið í mörgum miðlum og fengist við myndverk, videólist, hljóðgjörninga og ljósmyndun. Hún var höfundur opnunarverks Listahátíðar í Reykjavík 2013, The Vessel Orchestra, þar sem hún vann með kapteinum Reykjavíkurhafnar að því að búa til hljóðgjörning með skipaflautum 15 skipa. Lilja er partur af listakollektív-inu Fischersund sem vinnur á alþjóðlegum vettvangi og undirbýr nú einkasýningu í Norræna safninu í Seattle á þessu ári.
Ingibjörg hefur unnið náið með tónlistarsenunni á Íslandi og gert plötuumslög og tónlistarmyndbönd fyrir tónlistarfólk eins og Sigurrós, Jónsa, Múm, Sin Fang, Seabear, Sólay og Úlfur Úlfur. Ingibjörg er einn stofnmeðlimur og eigandi Fischersunds ilmgerðar og listasamsteypu sem meðal annarra verkefna er með staðfesta sýningu í Nordic Museum í Seattle, haust 2024,“ segir meðal annars í fréttatilkynningu.
Hér má sjá sýningartextann ásamt vel völdum myndum frá opnuninni:
„Allt okkar líf seljum við tíma okkar og orku til að geta sankað að okkur hlutum.
Og vissulega safnast þeir upp, þar til þeir eru faldir inní skáp eða geymslu, gleymast og glata tilgangi.
Heimili okkar blása út, belgjast út af hlutum sem fylgja okkur, eða hafa kannski alltaf verið þarna, stundum er erfitt að muna hvaðan þetta kom allt saman. Á endanum kemur óhjákvæmilega að því að við rúmum ekki lengur þetta fargan sem fylgir okkur.
Þá er að sjálfsögðu kominn tími til að stækka við sig, vinna meira, þéna meira, þenjast út, til þess eins að ferja lokaða kassa úr einni myrkvaðri geymslu í aðra rúmbetri.
Og þegar dagur er að ævikvöldi kominn fá börnin okkar það hlutskipti að fara í gegn um skápa, skúffur og hirslur. Velja hvaða arf þau vilja halda áfram að dröslast með milli sinna heima.“






















