Sport

Hákon skoraði í tapi gegn Toulouse

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Hákon Arnar fagnar fyrsta marki leiksins
Hákon Arnar fagnar fyrsta marki leiksins X / @LOSCLIVE

Hákon Arnar Haraldsson skoraði eina mark Lille í 3-1 tapi gegn Toulouse. 

Hákon Arnar Haraldsson skoraði fyrsta mark Lille rétt fyrir hálfleikslok eftir góðan undirbúning Jonathan David. 

Lille liðið hrundi svo niður í seinni hálfleik. Christian Mawissa jafnaði metin fyrir Toulouse á 49. mínútu og fimmtán mínútum síðar voru þeir komnir 3-1 yfir með mörkum frá Vincent Sierro af vítapunktinum og varamanninum Thijs Dallinga.

Hákon var tekinn af velli undir lok leiks fyrir Trévis Dago. Mörkin urðu ekki fleiri og Lille sendir heim með sárt ennið. 

Lille hefði unnið sig upp í þriðja sæti deildarinnar með sigri en situr sem fastast í því fimmta með 38 stig. Tveimur stigum frá Nice, þremur frá Monaco og fimm frá Brest. PSG trónir á toppnum með 53 stig, langt á undan öllum öðrum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×