„TF er skráningarnúmer íslenskra flugvéla, og köllum við okkur því TF-stuð áhöfnina,“ segir Gígja og hlær.
Hópurinn samanstendur af þeim Gígju Sigríði Guðjónsdóttur, Ingunni Köru Gunnarsdóttur, Ernu Viktoríu Jansdóttur, Rakel Ásgeirsdóttur og Guðbjörgu Láru Rúnarsdóttur. Allar starfar þær sem flugfreyjur hjá Icelandair.

„Við hittumst í hádeginu á þriðjudegi þar sem við eigum ekki möguleika að hittast um helgar út af fluginu. Þetta var í fyrsta sinn sem við héldum jólabröns en vorum sammála um þetta er hefð sem er komin til að vera,“ segir Gígja.

Gígja þykir með eindæmum smekkleg þegar kemur að matseld og framsetningu. Hátíðlegt jólaborðið var dekkað með matarstelli frá Royal Copenhagen, hvítum dúk og greni. Þá má segja að maturinn væri sjálfur algjört listaverk.
„Ég bauð upp á alls kyns jólasnittur, lax, flatkökur með hangikjöti, hamborgarhrygg, jólaköku, salat, og annað jólalegt,“ segir Gígja.


Jóla mímósa
Að sögn Gígju fékk hún fjölda fyrirspurna frá fylgjendum sínum um jóla-mímósu sem hún bauð upp á:
Aðferð:
- Appelsínubörkur skorinn í þunnar sneiðar sem raðað í rós í ferhyrnt klakabox.
- Trönuberjum bætt við og fyllt upp með vatni.
- Klakinn er settur í glas, hellt yfir með freyðivíni.
- Toppað með rósmarín stöngli til skrauts.

Hér má sjá annan kokteil í jólabúningi.
