Höllin er staðsett á Flórída og hún fór illa út óveðri á dögunum. Þakið gaf sig í óveðrinu þegar rafmagnið fór af.
Roof Collapse Halts Tiger Woods-Rory McIlroy Virtual Golf League Delayed To 2025https://t.co/lZEAlTIDkt pic.twitter.com/BW9ja68Nn7
— Forbes (@Forbes) November 20, 2023
TGL deildin sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem sagt var frá skemmdunun. Þakið féll saman en sem betur fer skemmdist tölvubúnaðurinn ekki neitt.
Fyrsta tímabilið í þessari sex liða keppni átti að hefjast eftir aðeins fimm vikur en nú hefur verið ákveðið að fyrsta keppnin fari ekki fram fyrr en árið 2025.
Sex lið eiga að keppa við hvert annað og efstu liðin komast síðan í úrslitakeppni. Deildin á að vera í gangi frá 9. janúar og klárast áður en Mastersmótið hefst í apríl.
#BREAKING: Tiger Woods and Rory McIlroys golf simulator league @TGL will NOT start until 2025 due to the damage caused at its venue in Florida. (Per @JoshACarpenter) pic.twitter.com/mC3XyJyMWK
— NUCLR GOLF (@NUCLRGOLF) November 20, 2023
Alls munu 24 kylfingar taka þátt og verða fjórir kylfingar í hverju liði. Meðal þeirra sem höfðu staðfest þátttöku voru Rickie Fowler, Tommy Fleetwood, Collin Morikawa, Justin Thomas, Justin Rose, Adam Scott og svo auðvitað Rory McIlroy og Tiger Woods.
Kylfingarnir munu slá lengri skotin í risastóran golfhermi en skotin í kringum flötina fara fram á sérstakri hátækniflöt. Golfhöggin eru slegin úr eðlilegum aðstæðum, hvort sem undirlagið er gras eða sandur.
#WATCH: A drone video shows the extensive damage done to the dome at the SoFi Center, home to Tiger Woods and Rory McIlroy s new @tglgolf simulator league.
— NUCLR GOLF (@NUCLRGOLF) November 17, 2023
(Via: @pbpost) pic.twitter.com/t1J3kOQIlu