Rjúpnaveiðin byrjar 20. október Karl Lúðvíksson skrifar 10. október 2023 09:39 Umhverfisstofnun hefur gefið út leyfilega daga til rjúpnaveiða á þessu hausti en stærsta breytingin frá árinu 2022 er að nú má veiða allann daginn en ekki bara frá hádegi.
Fyrirkomulag rjúpnaveiðanna í fyrra var ekki óumdeilt og lagðist frekar illa í rjúpnaskyttur. Því er þess vegna líklega fagnað að sjá að fallið hefur verið frá fyrra fyrirkomulagi og nú má ganga til veiða allann daginn þá daga sem veiðar eru leyfðar. Hér fyrir neðan er frétt af vef Umhverfisstofnunar. Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra hefur fallist á tillögu Umhverfisstofnunar að fyrirkomulagi rjúpnaveiða ársins 2023. Fyrirkomulag veiða Umhverfisstofnun leggur til að veiðar verði heimilar sem hér segir: Frá og með 20. október og til og með 21. nóvember frá og með föstudögum til og með þriðjudögum á því tímabili. Tillögur þessar eru lagðar fram að undangengnu ítarlegu og faglegu samráðsferli við Náttúrufræðistofnun Íslands, Fuglavernd og Skotveiðifélag Íslands og eru fyrsta skrefið í umbyltingu veiðistjórnunarkerfis fyrir rjúpnastofninn og byggja þær á aðferðarfræði nýs stofnlíkans. Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpu í vinnslu Síðastliðið ár hefur farið fram vinna við gerð stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu og nýtt stofnlíkan (IPM – integrated population model) fyrir rjúpnastofninn. Í lok árs 2022 gerði Umhverfisstofnun tímabundin samning við Dr. Fred Johnson, bandarískan sérfræðing í líkanagerð og veiðistjórnun við háskólann í Árósum og háskólann í Flórída. Fred hefur áratuga reynslu af gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir fugla- og dýrastofna og er einn af frumkvöðlum í heimi aðlögunarstjórnunar (adaptive management). Hann hefur undanfarna mánuði leitt vinnu við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir rjúpnastofninn og unnið að nýju og endurbættu stofnlíkani sem byggt er á gildum og veiðistjórnunarmarkmiðum vinnuhóps verkefnisins. Við gerð tillagnanna lagði Umhverfisstofnun til grundvallar niðurstöður úr nýju stofnstærðarlíkani fyrir rjúpnastofninn og mat á æskilegum fjölda veiðidaga. Líkanið byggir á gagnasafni áranna 2005 - 2023 og miðar að því að veiðar ársins muni ekki hafa þau áhrif að stofninn fari undir meðalstofnstærð sömu ára. Niðurstaðan er að rjúpnastofninn í ár þoli 25 veiðidaga. Umhverfisstofnun biðlar sérstaklega til veiðimanna að sýna hófsemi við veiðar. Mikilvægt er að allir hagsmunaaðilar komi að því hvatningarátaki.
Skotveiði Mest lesið 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði Mikil fjöldi erlendra gæsaveiðimanna Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði Sportveiðiblaðið er komið út Veiði 206 laxar á svæðum SVFR í Soginu Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Fyrstu laxarnir á land úr Mýrarkvísl Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Teljaraniðurstöður úr Gljúfurá Veiði 176 laxa holl í Haffjarðará Veiði