Greiðsluáskorun Skatturinn 16. september 2023 00:03 Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar: Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til og með 15. september 2023, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. september 2023 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. september 2023, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, ofgreiðslu stuðnings úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru: Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda. Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er 13 þúsund kr. fyrir hvert fjárnám. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað. Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verð út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum. Reykjavík, 16. september 2023 Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum Skattar og tollar Mest lesið Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Viðskipti erlent Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Atvinnulíf Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Viðskipti innlent Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira
Ríkisskattstjóri Sýslumaðurinn á Vesturlandi Sýslumaðurinn á VestfjörðumSýslumaðurinn á Norðurlandi vestra Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra Sýslumaðurinn á Austurlandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Skattar og tollar Mest lesið Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Viðskipti erlent Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Atvinnulíf Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Viðskipti innlent Icewear Garn opnar í Kringlunni Samstarf Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Viðskipti innlent „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira