Parka Camping auðveldar lífið í útilegunni Parka Camping 3. júlí 2023 11:22 Parka Camping skapar mikil þægindi fyrir fólk á ferðalagi og er afar auðvelt í notkun. Parka Camping appið virkar bæði sem sjálfsafgreiðslu- og forbókunarkerfi fyrir ferðalanga sem ferðast um landið með tjald, húsbíl, tjaldvagn eða fellihýsi.
Það eina sem ferðalangar þurfa að gera er að mæta á tjaldsvæðið þar sem þeir geta skannað QR kóða eða farið á uppgefna slóð og skráð sig og greitt sjálfir fyrir viðveru á tjaldsvæðinu. „Parka Camping skapar mikil þægindi fyrir fólk á ferðalagi,“ segir Arna Sigrún Haraldsdóttir, markaðsstjóri Parka Lausna. „Gestir sem skrá sig inn sjálfir losna við að fá tjaldsvæðisvörðinn í heimsókn um kvöldið eða snemma morguns sem gengur um tjaldsvæðið til að rukka fólk. Fyrir rekstraraðila tjaldsvæðisins er þetta hagkvæmt því með meiri sjálfsafgreiðslu þurfa tjaldsvæðaverðirnir ekki að ganga á milli allra gesta og geta því einbeitt sér að þrifum, viðhaldi og öðrum verkefnum.“ Hún segir misjafnt hvernig rekstraraðilar tjaldsvæða nota kerfið. „Við mælum með að þeir merki hvert stæði með númeri svo gestir viti nákvæmlega hvar þeir eiga að koma sér fyrir. Það er líka heppilegt fyrir alla sem koma á húsbíl að hafa sitt pláss bara fast og eiga ekki á hættu að einhver sé búinn að taka það ef maður skildi bregða sér frá tjaldsvæðinu í sund eða aðrar ferðir á bílnum.“ Mörgum finnst líka stressandi að leggja af stað í langferð og vera ekki viss hvort það verði laust pláss á tjaldsvæðinu eða ekki. „Þá er gott að geta verið búinn að forbóka. Með því að bóka fyrir fram geta rekstraraðilar boðið upp á ýmsa aðra þjónustu tengda tjaldsvæðinu. Nú er það í höndum hugmyndaríkra tjaldsvæðaeigenda að hugsa út fyrir boxið. Tjaldsvæðið við Berunes býður gestum sínum til dæmis upp á að kaupa morgunverð, VIP tjaldsvæðið á þjóðhátíð selur hleðslubanka með seldum miðum, aðrir eru með veiðileyfi o.s.frv. Það er svo margt hægt að gera.“ Það jafnast fátt á við góða útilegu yfir sumartímann. Tjaldstæðið á Egilsstöðum er eitt þeirra sem er í samstarfi við Parka Camping. Hingað til hafa viðtökurnar almennt verið mjög góðar að sögn Örnu. „Helstu óánægjuraddirnar snúa að þeim misskilningi að það ekki sé lengur hægt að mæta á staðinn án þess að vera búinn að skipuleggja alla ferðina í þaula og hafa bókað fyrir fram. Forbókunin er aðeins valkostur fyrir þau sem það vilja. Það eru engin tjaldsvæði í viðskiptum við Parka Camping sem banna fólki að tjalda, hafi það ekki bókað fyrir fram.“ Forritararnir hjá Parka eru sífellt að laga og bæta við ýmis konar smáatriðum sem starfsfólk Parka, gestir og rekstraraðilar reka augun í. „Stærsti nýi eiginleikinn er að nú geta gestir breytt bókuninni sjálfir í gegnum takka í kvittuninni sinni og losnað þannig við að þurfa að hringja í tjaldsvæðið. Nýverið bættist líka við valkosturinn að geta gert hópabókun. Það er frábært fyrir ferðaskrifstofur eða til dæmis fólk sem er að plana ættarmót eða aðra viðburði.“ Parka Camping kerfið er í vafra og því hægt að nota í öllum snjalltækjum. Nánari upplýsingar á parka.is/camping.
Ferðalög Fjölskyldumál Tjaldsvæði Mest lesið ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur „Það er kennitöluflakk í skilgreiningu sinni“ Viðskipti innlent Segir stjórnendur ætla að skilja skuldirnar eftir á Íslandi Viðskipti innlent „Hef engar upplýsingar um að eitthvað óeðlilegt hafi átt sér stað“ Viðskipti innlent Einar rýfur þögnina: Vísar kenningum um fléttu á bug Viðskipti innlent 208 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Samkaup eignast 38 prósenta hlut í Kjötkompaní Viðskipti innlent Einn stofnenda Play og Leifur í framkvæmdastjórn Icelandair Viðskipti innlent Íþróttafræðin inn á vinnustaðinn: Yfirmenn ekki lengur alvitri einhyrningurinn Atvinnulíf Eiríkur Orri til Ofar Viðskipti innlent Fleiri fréttir KLAK health býður sprotafyrirtæki í heilsutækni velkomin Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Viðskiptavinurinn alltaf í fókus Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Greiðsluáskorun BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Sjá meira