Kópavogsbúar bálreiðir vegna hugmynda um endurvinnslu við kirkjugarð Jakob Bjarnar skrifar 19. maí 2023 15:32 Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi sá sig knúna til að senda frá sér yfirlýsingu vegna málsins, að það væri ekki búið að ákveða að endurvinnslan verði við kirkjugarðinn. vísir/vilhelm Hugmyndir um að byggja nýja endurvinnslustöð við kirkjugarð í Kópavogi hefur kallað fram mikla reiði og mótmæli sem birtast á netinu. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri hefur séð ástæðu til að stíga fram og vekja athygli á því að þau í meirihluta bæjarstjórnar telji aðra staði heppilegri.
Ríkisútvarpið greindi frá því í vikunni að gangi hugmyndir stýrishóps eftir verði kirkjugarðurinn við Lindakirkju í Kópavogi minnkaður um sem nemur einum hektara og að þar verði komið fyrir nýrri endurvinnslustöð Sorpu. Ljóst er að þessar hugmyndir falla í afar grýtta jörð meðal Kópavogsbúa sem telja þær hreina svívirðu. Þannig hefur verið stofnaður sérstakur Facebook-hópur fyrir þá sem bera ábyrgð á leiðum í Kópavogskirkjugarði eða leiðishafa/rétthafa, gagngert til að mótmæla þessum áformum. Kópavogskirkjugarður við Lindakirkju. Mjög mörgum Kópavogsbúum hugnast það afar illa að þarna eigi að reisa nýja endurvinnslustöð Sorpu og telja að föllnum ástvinum sé sýnd lítilsvirðing með því. vísir/vilhelm Sá hópur ætlar sér að mótmæla tillögunum í „krafti fjöldans“ og vill standa vörð um „hvíldarstaði ástvina okkar“. Hópurinn heitir Kópavogskirkjugarður, leiðishafar / rétthafar og ástvinir. Málið hefur verið til umræðu á Facebook-síðunni „Kársnesið okkar“ „Ég er rosalega reið eftir að systir mín sem á unga dóttir í kirkjugarðinum við Kindarkirkju sagði mér frá áformum Kópavogsbæjar og Sorpu að setja upp stöð rétt við kirkjugarðinn,“ segir málshefjandi sem er Heiða Kristín Líndal Harðardóttir. Telja þetta óhæfu og lítilsvirðingu við syrgjendur og fallna ástvini Heiða Kristín vísar til fréttar RÚV og spyr hvort einhverjum sem misst hefur ástvini sem hvíla í garðinum finnist í lagi að hafa endurvinnslu í bakgrunni? Þá greinir Heiða Kristín frá því að systir hennar, sem nú syrgir hafi sent erindi til yfirvalda í Kópavogi þar sem hún telur að með þessu sé verið að sverta helgi staðarins ef þessi áform verða að veruleika. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri vill benda reiðum bæjarbúum á að ekkert sé ákveðið í þessum efnum enn.vísir/vilhelm Fjöldi fólks tekur undir og lýsir yfir vanþóknun sinni á þessum áformum. Þeim er mörgum hreinlega misboðið og telja þetta algjört rugl. Syrgjendur stíga fram og lýsa því yfir að börn þeirra hvíli í garðinum og þeir eiga vart orð í eigu sinni til að lýsa því hversu mjög þeim mislíka þessi áform. Önnur sem leggur orð í belg bendir á að móðir sín hvíli þarna og ljóst sé að hún eigi ekki eftir að vitja leiðisins í rólegheitunum. Staðsetningin á endurvinnslunni sé út í hött. Margir fleiri telja þetta lítilsvirðingu við minningu fallinna ástvina og hvetja til þess að efnt verði til sérstakrar undirskriftasöfnunar til að mótmæla þessum hugmyndum. Ruslið verður að fara eitthvað Sigvaldi Egill Lárusson sem var í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn í síðustu sveitarstjórnarkosningum drepur niður penna í hópinn Kársnesið okkar að því er virðist til að lægja öldur. Hann deilir þar færslu Ásar Kristjánsdóttur sem gerði frétt RÚV af þessum hugmyndum að umtalsefni á Facebooksíðu sinni. Endurvinnslustöð Sorpu við Dalsveg í Kópavogi. Samkvæmt greiningu er þetta sú endurvinnsla sem Kópavogsbúar vilja helst nota en til stendur að loka henni 1. september á næsta ári.vísir/vilhelm Ásdís segir mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga: „Í fyrsta lagi er hér verið að fjalla um tillögu starfshóps Sorpu en ekki tillögu bæjarstjórnar Kópavogs!“ Og: „Í öðru lagi teljum við í meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs að aðrir staðir séu ákjósanlegri fyrir starfsemi Sorpu, til dæmis í öðrum nágrannasveitarfélögum.“ Í samantekt starfshópsins og niðurstöðum segir hins vegar að í október síðastliðnum hafi bæjaryfirvöld í Kópavogi tilkynnt að endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg myndi lokað 1. september á næsta ári. Gallupkönnun leiði í ljós að 86 prósent Kópavogsbúa velji þá endurvinnslustöð umfram aðrar stöðvar. Nýrri stöð verði því að finna stað sem er innan tiltekins radíuss: „Eftir að hópurinn hafði velt upp og skoðað margar staðsetningar er sú hugmynd efst á blaði að minnka kirkjugarðinn við Lindakirkju um 1 hektara til að koma fyrir nýrri endurvinnslustöð við Arnarnesveg. Jafnframt að Garðabær leggi til a.m.k. jafnmikla stækkun á væntanlegum kirkjugarði í Rjúpnadal til að vega upp á móti minnkun garðsins við Lindakirkju.“
Kópavogur Sorphirða Sorpa Skipulag Kirkjugarðar Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Fleiri fréttir Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Sjá meira