Segir KSÍ ekki hafa rætt við aðra þjálfara áður en Arnar var látinn fara Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 17. apríl 2023 12:31 Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ. Vísir/Hulda Margrét Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands, segir ekkert til í því að KSÍ hafi rætt við aðra þjálfara í aðdraganda þess að Arnar Þór Viðarsson var látinn fara sem þjálfari karlalandsliðsins.
Frá þessu er greint á íþróttavef Morgunblaðsins. Þar segir Vanda að það hafi alls ekki verið þannig að KSÍ hafi verið búið að ræða við aðra þjálfara áður en Arnari Þór var sagt upp störfum. „Ég var ekki búin að tala við nokkurn mann, áður en Arnar hætti. Ég vil að það komi skýrt fram að við vorum ekki búin að ræða við neinn á meðan Arnar var með liðið,“ sagði Vanda við mbl.is. Þó er rétt að taka fram að í fyrra viðurkenndi Vanda að hafa rætt við Heimi Hallgrímsson, sem þá var án þjálfarastarfs, en hún vildi þá ekki fara nánar út í það hvað farið hefði þeim á milli. Arnar Þór var látinn fara í lok síðasta mánaðar eftir að í ljós kom að stjórn sambandsins taldi hann ekki vera rétta manninn til að leiða liðið áfram. Hann hafði tekið við A-landsliði karla í desember árið 2020. Á dögunum var svo staðfest að hinn 69 ára gamli Norðmaður Åge Hareide væri tekinn við liðinu. Sá býr yfir mikilli reynslu, bæði með lands- og félagsliði. Er það trú KSÍ að með hann við stjórnvölin eigi Ísland góða möguleika á að komast á EM 2024.
Fótbolti KSÍ EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Enski boltinn Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Enski boltinn Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Fótbolti Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Enski boltinn Butler sagður vilja burt frá Miami sem fyrst Körfubolti Dagskráin í dag: Pílan hefst aftur eftir hlé Sport Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Enski boltinn Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Enski boltinn Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool í litlum vandræðum eftir að hafa lent undir Andri skoraði fyrir Gent í fyrsta sinn síðan í september Ætla að áfrýja rauða spjaldinu Skoraði beint úr hornspyrnu eftir að United missti mann af velli Jason Daði sneri aftur í lið Grimsby og skoraði Willum í byrjunarliðinu er Birmingham tók toppsætið Slæmur skellur fyrir gestina á St. James Park Stefndi allt í sigur Chelsea en Fulham hafði aðrar hugmyndir Sáu ekki til sólar en unnu samt Hafa tvisvar áður mæst: „Gakpo er sem betur fer í mínu liði núna“ Haaland klúðraði víti og City tapaði stigum Tók „erfiðustu ákvörðun ævinnar“ og fór til Valencia Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Sjá meira