Innlent

Sól­veig hlakkar til að berjast á­fram með Ragnari

Máni Snær Þorláksson skrifar
Sólveig hlakkar til áframhaldandi baráttu með Ragnari.
Sólveig hlakkar til áframhaldandi baráttu með Ragnari. Facebook

Formaður Eflingar óskar nýendurkjörnum formanni VR til hamingju með endurkjörið. Hún segist hlakka til baráttunnar með honum.

Ragnar Þór Ingólfsson var í dag endurkjörinn formaður VR. Ragnar hlaut 57 prósent atkvæða í kosningunni em mótframbjóðandi hans, Elva Hrönn Hjartardóttir, starfsmaður VR, hlaut 39,4 prósent. Þáttaka í kosningunni var rétt rúmlega 30 prósent.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er ánægð með niðurstöðuna en hún óskar Ragnari til hamingju með hana í færslu sem hún birtir á Facebook síðu sinni.

„Algjörlega frábærar fréttir! Ég og félagar mínir hlökkum til að berjast með þér fyrir réttlátara og betra samfélagi,“ segir Sólveig í færslunni. Þá birtir hún mynd af sér og Ragnari þar sem þau standa skælbrosandi og snúa bökum saman.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×