Innlent

Maðurinn sem leitað var er fundinn

Árni Sæberg skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir manninum þegar ekkert hafði spurst til hans í rúman sólarhring.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir manninum þegar ekkert hafði spurst til hans í rúman sólarhring. Vísir/Vilhelm

Sjötugur karlmaður, sem lögregla lýsti eftir í gærkvöldi, er fundinn heill á húfi.

Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Síðast hafði verið vitað um ferðir mannsins um klukkan 18 á föstudagskvöld en nú hefur hann komist í leitirnar heilu og höldnu.

Lögreglan þakkar þeim sem aðstoðuðu við leit að manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×