LAVA var við það að blanda sér í toppslaginn en fyrir leikinn var liðið í fimmta sæti á meðan gengi Viðstöðu hefur verið örlítið slakara og liðið í sjöunda sæti deildarinnar.
Stalz vann hnífalotuna fyrir LAVA sem hóf leikinn í vörn af miklum krafti og vann fyrstu þrjár loturnar í leiknum. Xeny var einn gegn fjórum meðlimum LAVA í fjórðu lotu en tókst á ótrúlegan hátt að fella þá alla, koma sprengjunni fyrir og næla sér í ás eins og sjá má hér:
Fátt var um fína drætti hjá Viðstöðu það sem eftir lifði hálfleiks, þar sem nokkuð vantaði upp á bæði fjárhag og samskipti liðsins. Blazter, Mozar7 og Klassy voru lengi í gang á meðan Stalz, TripleG og Goa7er voru í góðu formi og héldu stjórninni á leiknum fyrir LAVA sem flaug fram úr Viðstöðu.
Staða í hálfleik: Viðstöðu 3 – 12 LAVA
Leikmenn Viðstöðu fóru þó af krafti inn í síðari hálfleikinn. Blazter hóf fyrstu lotuna á þrefaldri fellu og Allee sópaði restinni upp. LAVA náði nokkrum sinnum að koma sprengjunni fyrir í næstu lotum en Viðstöðu tókst að aftengja þær.
Í stöðunni 13–8 hrökk LAVA loks í gang og kláraði leikinn. Goa7er hafði komið sér efst á blað og LAVA byggði sóknarleik sinn á þolinmæði og samspili sem skilaði þeim tveimur stigum í þessum leik og heldur liðið stöðu sinni í 5. sæti deildarinnar.
Lokastaða: Viðstöðu 8 – 16 LAVA
Hlé verður gert á Ljósleiðaradeildinni á meðan umspil fyrir Blast mótið fer fram.
Næstu leikir liðanna:
- Þór–LAVA, þriðjudaginn 29. nóv., kl: 20:30
- Ármann–Viðstöðu, fimmtudaginn 1. des., kl: 20:30
Sýnt verður frá leikjunum í beinni á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.