Pique að hætta og spilar síðasta leikinn á laugardag Smári Jökull Jónsson skrifar 3. nóvember 2022 18:10 Pique leikur sinn síðasta leik fyrir Barcelona á laugardaginn. Vísir/Getty Gerard Pique, leikmaður Barcelona og landsliðsmaður Spánar til margra ára, tilkynnti nú rétt í þessu að hann ætli að leggja knattspyrnuskóna á hilluna og muni leika sinn síðasta leik á ferlinum á laugardaginn.
Pique hefur undanfarnar vikur verið orðaður við brottför frá Barcelona sem hann hefur leikið með nær allan sinn feril og unnið alla þá bikara sem í boði eru. Fréttir dagsins koma á óvart, sérstaklega í því ljósi að knattspyrnutímabilið er í fullum gangi. Pique hefur tekið þátt í níu af leikjum Barcelona á tímabilinu. Barcelona er uppeldisfélag Pique og í myndbandinu sem hann birtir á Twitter síðu sinni lýsir hann ást sinni á félaginu og segir að ekki hafi komið til greina að ljúka ferlinum með öðru félagi. Pique gekk ungur að aldri til liðs við Manchester United en sneri aftur til Barcelona árið 2008. Culers, us he de dir una cosa. pic.twitter.com/k3V919pm1T— Gerard Piqué (@3gerardpique) November 3, 2022 Pique hefur leikið 615 leiki fyrir spænska félagið og unnið með liðinu átta meistaratitla, sjö bikartitla og þrjá Meistaradeildartitla. Þá hefur hann leikið 102 landsleiki fyrir spænska landsliðið og var í sigurliði Spánverja á HM 2010 og EM 2012. Eins og áður segir kemur fram í myndbandinu að síðasti leikur Pique verði á laugardaginn þegar Barcelona mætir Almeria á heimavelli sínum.
Spænski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Sjá meira