Innlent

Lögregla leitar manns

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla segir að þótt myndirnar séu dálítið óskýrar megi ætla að þær geti gefið góðar vísbendingar um hver maðurinn er.
Lögregla segir að þótt myndirnar séu dálítið óskýrar megi ætla að þær geti gefið góðar vísbendingar um hver maðurinn er. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir að ná tali af manni sem birtist á myndum sem fylgja fréttinni og má sjá að ofan.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn sé vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

„Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gunnar.runar@lrh.is

Þótt myndirnar séu dálítið óskýrar má ætla að þær geti gefið góðar vísbendingar um hver maðurinn er,“ segir í tilkynningunni frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×