Innlent

Strípa­lingur, harmonikku­spilari og vinnu­véla­bruni meðal verk­efna lög­reglu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Lögreglan var kölluð út í miðbæinn vegna harmonikkuspilara sem var sakaður um að geta hvorki haldið tóni né lagi.
Lögreglan var kölluð út í miðbæinn vegna harmonikkuspilara sem var sakaður um að geta hvorki haldið tóni né lagi. Vísir/Vilhelm

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur þrátt fyrir gott veður þurft að glíma við ýmis verkefni í dag. Eins og lögregla skrifar sjálf í dagbók sína virðist sumarhitinn hafa farið misvel í fólk.

Tilkynning barst lögreglu í dag um strípaling fyrir utan verslun í Kópavogi en lögregla sá hvergi slíkan mann þegar hana bar að garði. Þá var manni vísað út úr strætisvagni þegar hann neitaði að greiða fargjaldið og neitaði að yfirgefa vagninn þegar vagnstjóri gerði til þess tilraun. 

Þá segir að umferð hafi gengið ágætlega í höfuðborginni í dag en tveir hafi þó verið ákærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fyrir akstur sviptur ökuréttindum. 

Þá var tilkynnt um eld í vinnuvél í Hafnarfirði en stjórnanda vinnuvélarinnar hafði tekist að slökkva eldinn áður en viðbragðsaðila bar að garði. Maðurinn hlaut minniháttar brunasár. 

Þá segir lögregla að tilkynnt hafi verið um harmonikkuspilara í miðborginni, sem hvorki hafði burði til að halda tón né lagi. 

„Sendi lögregla á vettvang einn af sínum tónvísari liðsmönnum og annálaðan smekkmann, til að sannreyna hvort þessar alvarlegu ásakanir ættu við rök að styðjast. Verða gæði þess sem fyrir eyru bar ekki tíunduð hér, af gefnu tilefni,“ segir í dagbók lögreglu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×