Innlent

Þjófar höfðu á brott mikið magn af bílskoðunarmiðum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Talsverðu magni af skoðunarmiðum var stolið af skoðunarstöð á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Talsverðu magni af skoðunarmiðum var stolið af skoðunarstöð á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Sigurjón

Þjófar höfðu á brott mikið magn skoðunarmiða af skoðunarstöð á höfuðborgarstæðinu síðdegis í dag. Lögregla segir að sé fólk staðið að því að vera með ranga skoðunarmiða á skráningarmerkjum ökutækja sinna fái þeir kæru vegna brota á hegningarlögum í verðlaun.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en þar segir að lögregla noti á tækniveiddri öld aðrar og nýstárlegri aðferðir en aflestur límmiða til að sannreyna hvort ökutæki hafi verið skoðuð og vátryggt eður ei. 

„Hitt er svo það, öllu alvarlegra, að þegar aðilar eru staðnir að því að vera með ranga skoðunarmiða á skráningarmerkjum ökutækja sinna hljóta þeir kæru vegna brota á hegningarlögum í verðlaun, enda felur slík háttsemi undir ákvæði um skjalafals,“ segir í dagbók lögreglu.

Fram kemur í dagbókinni að eitt og annað hafi verið um að vera þennan föstudaginn hjá lögreglunni. Til að mynda hafi verið tilkynnt um tvo menn í austurbæ Reykjavíkur sem voru að slást og þurfti lögregla að koma að sáttmiðlun. Þá var tilkynnt um tvo aðra sem tókust á í heimahúsi seinni partinn en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir um það. 

Þá sé reglulega tilkynnt um fólk í annarlegu ástandi, sem oftar en ekki sé að angra samborgara sína. Lögregla hafði afskipti af tveimur slíkum aðilum annars vegar á bókasafni og hins vegar í verslun. 

Þá var tilkynnt um eld í skúr í austurborginni en hann gereyðilagðist í eldinum. Lögregla segir ekki vitað um eldsupptök á þessu stigi, né í hvers eigu skúrinn var enda hafi hann staðið nokkuð afskekkt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×