Fyrstu laxarnir komnir í Laxá í Kjós Karl Lúðvíksson skrifar 24. maí 2022 08:33 Haraldur Eiríksson með lax úr Kjósinni 2021 Fyrstu laxarnir sáust í Laxá í Kjós í gær og það kemur engum á óvart sem þekkir Laxá vel að fyrstu lónbúarnir séu mættir.
Það koma venjulega fréttir af fyrstu löxunum í Laxá í Kjós um þetta leiti á hverju ári og einn ágætur velunnari Laxá hefur haft það á orði að 25. maí væri dagurinn sem þeir mæta. Þeir eru þá bara einum degi á undan áætlun og hvort það sé einhver fyrirboði um góða veiði í sumar skal ekki fullyrt. Laxveiðin hefst 1. júní en þá hefst veiði við Urriðafoss í Þjórsá en hún er heldur óárennanleg þessa dagana enda í 700 rm sem gerir hana ekki óveiðandi en áskorun verður það. Vatnsbúskapur laxveiðiánna er með besta móti miðað við mörg önnur vor. Nóg vatn er í ánum og á hálendinu sem vonandi verður til þess að gott vatn verði lengst af í sumar þó svo að það komi eitthvað þurrkatímabil. Það er mikil spenna í loftinu eftir því að fá fregnir af fyrstu löxum sumarsins eins og alltaf enda langur vetur erfiður fyrir veiðimenn og veiðikonur sem bíða með gljáfægðar stangir og þrá ekkert heitara en að komast í vöðlur og út í á.
Stangveiði Kjósarhreppur Mest lesið Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Fyrsti lax sumarsins kominn á land í Ytri Rangá Veiði Miklir möguleikar í vetrarveiði á Íslandi Veiði Fjórir í framboði fyrir þrjú sæti í stjórn SVFR Veiði 1-2 metra þykkur ís á mörgum vötnum norðan- og vestanlands Veiði Lax að veiðast í Hítará þrátt fyrir erfið skilyrði Veiði "Þetta er stærsti fiskur sem veiðst hefur í sumar“ Veiði Fjórir laxar veiddust í kuldanum í kvöld Veiði SVFR leitar að bestu veiðimynd 2015 Veiði Veiðistaðir sem detta inn og út Veiði