Innlent

Gunnar Smári gefur kost á sér til for­­mennsku í Heim­dalli

Atli Ísleifsson skrifar
Gunnar Smári Þorsteinsson.
Gunnar Smári Þorsteinsson. Aðsend

Gunnar Smári Þorsteinsson hefur gefið kost á sér til formennsku í Heimdalli, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Aðalfundur félagsins fer fram í vikunni eða dagana 23. til 25. febrúar.

Áður hefur verið greint frá því að Birta Karen Tryggvadóttir gefi kost á sér til formennsku í félaginu.

Í tilkynningu segir að Gunnar Smári sé 26 ára og sé á lokaári í meistaranámi í lögfræði við Háskóla Íslands.

„Árin 2016-2020 starfaði Gunnar Smári hjá Borgun, m.a. sem sérfræðingur í rekstrarlausnum á færsluhirðingarsviði. Þá hefur hann undanfarin tvö ár starfað sem laganemi á Rétti – Aðalsteinsson & partners. Gunnar Smári var aðstoðarmaður dósents við Lagadeild HÍ og hefur verið aðstoðarkennari við deildina. Sumarið 2020 vann Gunnar Smári að rannsóknarverkefni um áhrif ófyrirsjáanlegra og óviðráðanlegra ytri atvika á skuldbindingargildi samninga, en verkefnið var styrkt af nýsköpunarsjóði námsmanna.

Gunnar Smári hefur tekið virkan þátt í félagsstörfum undanfarin ár. Hann situr í framkvæmdastjórn SUS og er alþjóðafulltrúi sambandsins. Hann sat í stjórn Heimdallar 2018-2020, stjórn Vöku fls. 2018-2019 og stjórn Orators, félags laganema í HÍ 2019-2020, sem ritstjóri Úlfljóts, tímarits laganema. Þá var hann framkvæmdastjóri lögfræðiaðstoðar Orators 2020-2021,“ segir í tilkynningunni.

Ásamt Gunnari skipa eftirfarandi aðilar framboðslistann:

  • Brynja Kristín Magnúsdóttir, 26 ára, lögfræðingur.
  • Arent Orri Jónsson, 19 ára, laganemi við Háskóla Íslands.
  • Halldís Hrund Guðmundsdóttir, 29 ára, fyrirtækjaeigandi.
  • Alfreð Ari Chiarolanzio, 30 ára, tæknimaður.
  • Silja Ísberg, 29 ára, sérfræðingur hjá ársreikningaskrá.
  • Guðmundur Skarphéðinsson, 22 ára, laganemi við Háskóla Íslands og formaður Orators, félags laganema í HÍ.
  • Sonja Dís Johnson Guðlaugsdóttir, 20 ára, stúdent úr Verslunarskóla Íslands og vaktstjóri í Hreyfingu.
  • Logi Stefánsson, 20 ára, viðskiptafræðinemi við Háskóla Íslands.
  • Sædís Jónsdóttir, 26 ára, verkfræðinemi.
  • Daníel Hjörvar Guðmundsson, 23 ára, laganemi við Háskóla Íslands.
  • Anna Lára Orlowska, 27 ára, sálfræðinemi við Háskólann í Reykjavík.
  • Garðar Árni Garðarsson, 21 árs, laganemi við Háskóla Íslands.
  • Nína Rún Óladóttir, 27 ára, viðskiptafræðingur.
  • Gísli Garðar Bergsson, 18 ára, nemi í Menntaskólanum í Reykjavík.
  • Sigríður Birna Róbertsdóttir, 30 ára, meistaranemi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.
  • Eiður Atli Axelsson, 17 ára, nemi í Menntaskólanum í Reykjavík.
  • Margrét Björk Grétarsdóttir, 24 ára, íþróttafræðinemi við Háskólann í Reykjavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×