Haft var eftir Kára í Fréttablaðinu í dag að svarbréf Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við opnu bréfi, þar sem Kári óskaði eftir stuðningi ríkisstjórnarinnar, hafi verið innihaldslaust og í því ekki falist neinn stuðningur.
„Ég hafði ekki lesið þetta bréf hennar Katrínar til hlítar og það er þetta sem gerist þegar illa gefinn maður les flókinn texta, að út úr þessu kom misskilningur,“ segir Kári nú í samtali við Vísi.
Persónuvernd birti í nóvember ákvarðanir þar sem fram kom að bæði Íslensk erfðagreining og Landspítali hafa brotið persónuverndarlög með mótefnamælingum með blóðsýnatöku úr Covid-19 sjúklingum vorið 2020.
Katrín sammála túlkun Kára
Kári og ÍE hafa gert alvarlegar athugasemdir við niðurstöðu Persónuverndar og hyggjast láta reyna á niðurstöðuna fyrir dómstólum.
„Katrín hefur veitt okkur nákvæmlega allan þann stuðning sem ég bað um í opna bréfinu sem ég sendi ríkisstjórninni, þannig að ég er afskaplega þakklátur fyrir það. Þetta bréf endurspeglar þá góðu samvinnu sem hefur verið milli okkar og stjórnvalda í vinnunni við þennan faraldur,“ segir Kári.
Í bréfinu hafi komið fram að Katrín væri sammála þeirri túlkun ÍE og sóttvarnalæknis að fyrirtækið hafi með mótefnamælingunum í byrjun apríl 2020 verið að hlúa að sóttvörnum.
„Við vorum ekki að vinna að vísindarannsókn að gamni okkar eins og Persónuvernd ályktaði,“ segir Kári.

Ekki beðið forsætisráðherra um að skipta sér af ákvörðun Persónuverndar
„Það er sjálfsagt að vera kaþólskur í allri persónuvernd en ég skil ekki hvernig Persónuvernd dettur í hug að halda að hún sé sú stofnun sem ákvarði hvort eitthvað séu sóttvarnir eða ekki, hún finni hjá sér hvöt til að gagna gegn sóttvarnalækni. Það er dálítið skringilegt.
Þarna í byrjun aprílmánaðar er pestin alveg ný og við erum að reyna að finna út hvað hún sé að gera og hvernig eigi að bregðast við. Við vorum að vinna að beiðni sóttvarnalæknis og Persónuvernd ályktar að við höfum ekki verið að vinna að sóttvörnum.“
Haft var eftir Kára í frétt Fréttablaðsins í dag að í svari Katrínar bendi hún á að Persónuvernd sé sjálfstæð stofnun sem starfi á grundvelli laga og því séu hendur ráðherra bundnar varðandi afstöðu til einstakra mála.
Kári segir það ekki rétt að þetta komi fram í umræddu bréfi.
„Við vorum ekki að biðja forsætisráðherra um að reyna að hafa áhrif á ákvarðanir Persónuverndar, því að því leyti eru hendur ríkisstjórnarinnar bundnar. Við vorum að biðja hana um að tjá skoðun sína á málinu og þar segir hún alveg klárlega að hún sé sammála sóttvarnalækni og að við höfum verið að vinna að sóttvörnum og engu öðru.“