Djörf BDSM-sena í nýju tónlistarmyndbandi Örnu Báru Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 14. desember 2021 20:41 Arna Bára fékk vin sinn Matty til að leika með sér í myndbandinu og segir hún stemmninguna í tökum alls ekki verið vandræðalega. Samsett mynd Nekt, grímur, vopn og svipur koma fyrir í nýju tónlistarmyndbandi fyrirsætunnar og tónlistarkonunnar, Örnu Báru Karlsdóttur.
Arna Bára er búsett á Spáni ásamt manni sínum og börnum í villu sem metin er á 600 milljónir íslenskra króna. Þar starfar hún meðal annars við framleiðslu á efni fyrir samfélagsmiðla. Lagið fjallar um það súra og sæta Í sumar steig Arna Bára sín fyrstu skref í tónlistarheiminum og gaf út lagið Vertigo í samvinnu við tónlistarmanninn og plötusnúðinn Stijn Claes. Annað Lag Örnu Báru, Brake It, kom út í dag á Youtube ásamt tónlistarmyndbandi. Arna samdi lagið í samvinnu við framleiðsluteymið sitt og segir hún söguna fjalla um ástarsamband. „Sagan er um samband sem að gengur upp og niður, þar sem gengið er virkilega gegnum allt súrt og sætt en svo endar allt vel. Þetta er gert á sexí og spennandi hátt.“ Arna Bára samdi sjálf handritið af myndbandinu sem hún lék í með vini sínum Matty Gilbert. Skjáskot Samdi handritið sjálf Myndbandið, sem leikstýrt er af Junes Lazaar, er í djarfari kantinum en sem dæmi má þar sjá BDSM-senu þar sem meðal annars glittir í skotvopn, hnífa og svipur. Hvernig leið þér að leika í þessum djörfu senum, upplifðir þú enga feimni? „Ég samdi handritið af myndbandinu sjálf, enda ég hef gengið í gegnum margt í þeim fáu samböndum sem ég hef verið í. En nei, ég var alls ekki feimin í tökum á myndbandinu og var það ótrúlega skemmtilegt í vinnslu. Ég brosi í hvert skipti sem ég horfi á það,“ Arna segir Matty hafa flogið frá Írlandi til Spánar strax daginn eftir og hún bað hann um að leika með sér í myndbandinu. Skjáskot. Plata á leiðinni Arna fékk vin sinn Matty Gilbert „The Irish Viking“ til að leika með sér í myndbandinu og að hann hafi ekki hugsað sig tvisvar um þegar hún sendi honum skilaboð og bað hann að leika í myndbandinu. Hann var meira en til í það og kom fljúgandi alla leið frá Írlandi daginn eftir með fjölskyldunni sinni til að geta tekið þátt í þessu með mér. Það fór ótrúlega skemmtileg vika í að taka þetta upp og konan hans og barn höfðu það mega kósý í villunni okkar hér á spáni á meðan á tökum stóð. Arna Bára segir fleiri lög vera í vinnslu svo að vel mætti búast við plötu frá henni á næstunni. Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndbandið við lagið Brake It.
Tónlist Mest lesið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið „Hluti af mér dó með honum“ Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Sjá meira