Na og Kokrak fengu fugla á 12 af síðustu 13 holunum þegar leikið var í fjórbolta í gær, á lokadegi mótsins, og tryggðu sér þar með dramatískan sigur á mótinu sem er hluti af PGA-mótaröðinni. Þeir enduðu höggi á undan Billy Horschel og Sam Burns.
Dramatískur sigurinn var þó Na ekki efstur í huga þegar hann mætti í viðtal í gær enda síðastliðinn mánuður verið honum afar erfiður.
„Ég missti tvo góða vini mína síðastliðinn mánuð. Annar þeirra var Kenny Lee, náungi frá Vegas [þar sem Na er búsettur] sem hefur þar mikil áhrif. Hinn er æskuvinur minn, Dusty Smith, sem ég ólst upp með og spilaði golf með í Western Hills golfklúbbnum í Kaliforníu.
Hann fékk hjartaáfall, og þetta hafði mikil áhrif á mig. Við eigum minningar um hann frá því að hann kom á The Masters, hann var kylfusveinn fyrir mig á U.S. Junior, U.S. Am og Pro Golf mótum,“ sagði Na.
"I've never cried so much in the past month."
— PGA TOUR (@PGATOUR) December 12, 2021
Today was an emotional win for @KevinNa915 after he recently lost two very close friends. pic.twitter.com/9XNw8i8qWD
„Ég hef aldrei grátið eins mikið og síðastliðinn mánuð. Ég held að hann hafi verið þarna uppi að hjálpa okkur. Mig langar að þakka þeim báðum og ég held að þetta hefði ekki verið mögulegt án þeirra,“ sagði Na.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.