Opna breska fór ekki fram í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins en 2019 hrósaði Írinn Shane Lowry sigri á því.
Keppni á Opna breska er komin vel af stað og nokkrir kylfingar hafa klárað eða eru að klára fyrsta hringinn.
Bandaríkjamaðurinn Brian Harman er sem stendur með eins höggs forystu en hann er á fjórum höggum undir pari. Hann fékk fjóra fugla á fyrstu fimm holunum.
Five holes. Four birdies.
— The Open (@TheOpen) July 15, 2021
Brian Harman is on fire
Follow the action https://t.co/xYY44zAFs3 #TheOpen pic.twitter.com/aq6mhCOkFo
Næstir koma Andy Sullivan, Justin Harding, Viktor Hovland, Mackenzie Hughes og Jordan Spieth. Sá síðastnefndi hefur fengið fjóra fugla í röð. Sullivan og Harding hafa lokið leik á fyrsta hring.
A first birdie of the day for @JordanSpieth
— The Open (@TheOpen) July 15, 2021
Catch every shot live from his group at https://t.co/nF1CsC3YNF #TheOpen pic.twitter.com/Pl6qn0kUk7
Efsti maður heimslistans, Dustin Johnson, er á einu höggi undir pari. Lowry, sem á titil að verja, er á einu höggi yfir pari sem og Bryson DeChambeau. Jon Rahm, sem vann síðasta risamót, Opna bandaríska, er á pari.
Meðal kylfinga sem eiga enn eftir að hefja leik má nefna Rory McIlroy, Justin Thomas, Collin Morikawa, Xander Schauffele og Phil Mickelson.
Fylgjast má með Opna breska í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf. Útsendingartíma má sjá hér.

Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum. Helgarpassa að Stöð 2 Golf má kaupa á kerfum Vodafone.