Sjúkra- og slökkviliðsmenn við bugun vegna álags Jakob Bjarnar skrifar 2. júlí 2021 10:56 Slökkviliðsmenn eru að sligast undan álagi. Erfitt gengur að finna skýringar á því hvað veldur. Lengst til hægri á myndinni er Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Einar „Við hreinlega vitum það ekki,“ segir Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri í samtali við Vísi spurður um hvað valdi þessu gríðarlega álagi.
Eins og svo margar aðrar stofnanir samfélagsins er Slökkviðlið höfuðborgarsvæðisins með Facebook-síðu þar sem þeir segja af því hvað á dagana drífur. Og stuttlega skoðun sýnir að þar sjá menn vart út úr augum: „Við toppuðum síðasta sólarhring sem var þó mjög stór. 147 útköll á sjúkrabíla. Dagvaktin fór í 105 og næturvaktin 41. þetta má fara niður en ekki upp. Þetta er bara rugl,“ segir í nýrri færslu. Fyrir tæpum sólarhring: „Sjaldan rólegir dagar hér hjá okkur.“ Í gær: „Þetta er orðið alveg ágætt, nú má fara að draga úr fjölda flutninga. Við fórum í 130 sjúkraflutninga síðasta sólarhring.“ Og á miðvikudag: „Lætin halda áfram hjá okkur í sjúkraflutningunum sem enduðu í 131 síðasta sólarhring. Af þeim voru 21 forgangsflutningar.“ Á þriðjudaginn: „Það heldur áfram álagið á sjúkrabílana hjá okkur síðasta sólarhring. Fóru þeir í alls 125 flutninga og voru 23 af þeim forgangsflutningar.“ Þannig eru tilkynningarnar sem benda til þess að meðal sjúkraflutningamanna sé stutt í allsherjar bugun. Jón Viðar segir að reynt hafi verið að greina vandann. Kórónuveiran eigi sinn þátt í þessu. Samfélagið hafi lagst í dvala og svo hafi þetta breyst takvisst. Skilja ekkert í því hvað veldur þessu álagi „Virðist einhvern veginn ekkert lát vera á þessu. Við áttum okkur ekki á því hvað veldur, stundum hefur hægst á flutningum þegar sjúkrahúsin fara að loka deildum vegna sumarleyfa. Þá hefur stundum hægst á og yfirleitt í júlímánuði en ekki er farið að reyna á það núna. Já, þetta er ótrúlegt. Hundrað flutninga dagar hjá okkur er orðin regla sem var undantekning áður.“ Jón Viðar segir að Slökkviliðið hafi flaggað þessari stöðu reglubundið við þá sem það er í samningi við sem eru Sjúkratryggingar Ísland. „Það er samtal um þessa hluti, en við erum ekki að ná að greina þetta þannig að við vitum hvar vandinn liggur. Ekki nema það sé orðin almennt meiri þörf.“ Þannig finnst ekkert eitt fremur en annað en álagið hefur verið mjög mikið og lengi. „Við fjölguðum hjá okkur starfsfólki um áramótin, til að takast á við aukið álag og styttingu vinnuvikunnar sem er annað verkefni sem við erum að glíma.“ Þjóðin að eldast og það er eitt púsl í þessa mynd Slökkviliðsstjórinn bendir á að þetta hangi auðvitað saman við aukið álag í heilbrigðiskerfinu almennt en þeir eru hluti af því. Eru að flytja veika einstaklinga. Spurður hvort þetta gæti tengst því að þjóðin sé að eldast segir Jón Viðar það klárt en það ætti þó ekki að sýna sig með þessum hætti. Það væri þá meira hægt og bítandi fremur en að álagið ykist svona hröðum skrefum. „Klárlega mun sjúkraflutningum fjölga með því. En svona mikil aukning á stuttum tíma skýrist ekki af því. Það ætti að vera hægt og bítandi, en klárlega eitt púslið í myndinni.“ En er við þetta búandi? „Nei, fyrir liggur að það þarf að styrkja okkar stoðir og gera að verkum að við náum að leysa þessa þörf og að álagið sé manneskjulegt. Það er verkefni sem við erum að vinna að með Sjúkratryggingum Íslands og er verið að leggja áherslu á þann þátt. Svona hlutir því miður taka oft langan tíma.“ Tekur langan tíma að þjálfa sjúkraflutningafólk Er kerfið þá of svifaseint? „Já og nei. Langtímabreytingar taka oft tíma. Það liggur fyrir þegar þarf að fjölga að þá þarf að þjálfa fólk. Það tekur þrjá til sex mánuði að þjálfa upp einstaklinga til að fara í störf hjá okkur. Til að ná að fara í ráðningar þarf að liggja fyrir sameiginleg sýn á hvernig á að manna. Við erum í verktöku hjá Sjúkratryggingum Íslands, sem eru á forræði ríkisins og við erum í verktöku hjá þeim. Þetta hefur gengið vel, það þarf bara að finna lausnir. Jón Viðar segir að klárlega sé sú staðreynd að þjóðin sé að eldast hluti skýringarinnar en ef það væri eina skýringin myndi það sýna sig með öðrum hætti.Vísir/Vilhelm Við erum nýbúnir að framlengja í sex mánuði en erum samningslausir um næstu áramót en ég er viss um að það mun leysast. En það hefur verið góður taktur í samskiptum okkar við Sjúkratryggingar Íslands. Álag í heilbrigðskerfinu er mjög þungt. Fyrir stuttu síðan kom ákall frá læknum til heilbrigðisráðherra og í svörum ráðherra kom fram að hann er meðvitaður um álagið. En ég hef enga eina skýringu á þessu.“ Erum við þá ekki að horfa fram á bugun í ykkar röðum? „Það hefur verið mjög mikið álag á fólki og ótrúlegt hvað menn hafa náð að leysa.“ Að sögn Jóns Viðars telja starfsmenn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í heild sinni, með forvarnarsviði, um 200 manns. Þeir sem eru í flutningum eru um 170 til 180 manns en þar er unnið á fjórskiptum vöktum, allan sólarhringinn.
Slökkvilið Sjúkraflutningar Heilbrigðismál Tengdar fréttir Segir kulnun og atgervisflótta í læknastéttinni „Læknar eru bara orðnir mjög þreyttir. Þeir geta ekki hlaupið hraðar og það er ákveðin kulnun og atgervisflótti í læknastéttinni.“ Þetta segir Theódór Skúli Sigurðarson svæfinga- og gjörgæslulæknir og forsvarsmaður undirskrifasöfnunar meðal lækna. 22. júní 2021 14:30 Skorið inn að beini hjá slökkviliðinu Fækkun starfsmanna og fleiri verkefni hafa aukið álag á þá og getur skapað hættu. Dæmi um að of fáir menn séu á hverjum bíl svo bíða þarf eftir næsta bíl til að sinna reykköfun. 21. júní 2016 07:00 Álag og samskiptavandi við yfirmenn sögð valda óánægju meðal slökkviliðsmanna Mikil óánægja er meðal slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar starfsánægjukönnunar. Álag, léleg samskipti við yfirmenn og lítil endurmenntun eru sögð helstu vandamálin. 11. janúar 2021 20:00 Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Telur fleiri falla á nýju bílprófi Innlent Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Innlent Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Erlent Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Maður margra storma íhugar stöðu sína Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Fleiri fréttir „Ekki samfélagslega ábyrgt af fyrirtæki í nútímasamfélagi að vera í Viðskiptaráði“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Áfram í varðhaldi fyrir að ræna og hóta ungmennum Fjölskylda flugmanns vill að lögregla rannsaki andlát hans Sýndi lögreglu löngutöng og var ekinn út af Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Loka almenningsbókasafninu og leita til Akureyrar Búið að taka sýni úr ungu birnunni Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Kona réðst að sjö ára dreng við Smáraskóla Stofna námsstyrk á sviði umhverfismála í nafni Ellýjar Hafa „góða hugmynd“ hvar og hvenær stúlkunni var ráðinn bani Maður sem var leitað við Vík fannst látinn Ákvörðun ráðherra viðurkenning á að mikil þekking sé fyrir norðan Biðin óásættanleg og vill skýr svör frá ríkinu Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Sjá meira
Segir kulnun og atgervisflótta í læknastéttinni „Læknar eru bara orðnir mjög þreyttir. Þeir geta ekki hlaupið hraðar og það er ákveðin kulnun og atgervisflótti í læknastéttinni.“ Þetta segir Theódór Skúli Sigurðarson svæfinga- og gjörgæslulæknir og forsvarsmaður undirskrifasöfnunar meðal lækna. 22. júní 2021 14:30
Skorið inn að beini hjá slökkviliðinu Fækkun starfsmanna og fleiri verkefni hafa aukið álag á þá og getur skapað hættu. Dæmi um að of fáir menn séu á hverjum bíl svo bíða þarf eftir næsta bíl til að sinna reykköfun. 21. júní 2016 07:00
Álag og samskiptavandi við yfirmenn sögð valda óánægju meðal slökkviliðsmanna Mikil óánægja er meðal slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar starfsánægjukönnunar. Álag, léleg samskipti við yfirmenn og lítil endurmenntun eru sögð helstu vandamálin. 11. janúar 2021 20:00
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent