Þetta lokapútt English á áttundu holu umspilsins tryggði þessum 31 árs gamla kylfingi óvæntan sigur á þessu PGA-móti en það hjálpaði um leið getspökum manni hinum megin Atlantshafsins að uppskera ríkulega.
Sá getspaki býr í London og setti saman frekar magnaðan „Lengjuseðil sem innihélt tvo leiki á Evrópumótinu í knattspyrnu og fjóra sigurvegara á golfmótum helgarinnar.
Harris English wasn t the only one who scored big after his Travelers Championship victory. https://t.co/x9Q0pQQxLj
— GOLF.com (@GOLF_com) June 30, 2021
Lengjuseðillinn kostaði aðeins 15,5 dollara eða um tvö þúsund krónur. Hann skilaði honum aftur á móti 1,36 milljónum Bandaríkjadala eða um 169 milljóum íslenskra króna.
Viðkomandi setti „Lengjuseðil“ sinn saman 22. júní og það var því ekki eins og hann hafi hent í hann á síðustu stundu. Líkurnar voru 90.396 á móti einum.
Hann veðjaði á að Króatía myndi vinna Skotland og England myndi vinna Tékkland á EM í knattspyrnu. Þá veðjaði hann í viðbót á það að Steve Stricker myndi vinna Bridgestone Senior Players Championship, Nelly Korda myndi vinna KPMG Women's PGA Championship og að Viktor Hovland myndi vinna BMW International Open. Síðast en ekki síst þá veðjaði hann á það að Harris English myndi vinna Travelers Championship.
ICYMI, a bettor won $1.36 million off a $15.50 six-leg parlay at @Betfair.
— Ben Fawkes (@BFawkes22) June 29, 2021
Final leg was Harris English to win the Travelers Championship at 35-1.
English won on eighth playoff hole.
Incredible. pic.twitter.com/oWdmpfRXlO
„Ég var viss um að Hovland, Korda og Steve Stricker voru góð veðmál. Ég var aftur á móti smá öruggur með Harris English,“ var haft eftir hinum getspaka sem kom þó ekki fram undir nafni.
Það var allt í húsi á seðlinum nema sigur Harris English enda þurfti English að fara í eitt lengsta umspil sögunnar til að tryggja sér titilinn.
Þegar lokapútt English fór í holuna og hann tryggði sér sigurinn þá var það einn maður í Englandi sem fagnaði meira en nokkur annar. Svo skemmtilega vill til að sigurlaun English voru nánast þau sömu og hjá hinum getspaka hinum megin Atlantshafsins.
„Ég hélt ég væri að fá hjartaáfall þegar púttið hans rataði í holuna. Ég trúði þessu ekki,“ sagði hinn getspaki og nýríki maður.