Þættir Sjávarútvegsskólans um heimsmarkmið fjórtán sýndir á Hringbraut Heimsljós 1. júní 2021 10:37 Mary Frances Davidson aðstoðarforstöðumaður Sjávarútvegsskólans. Þættirnir eru sýndir á Hringbraut. Þættirnir eru byggðir á rúmlega tuttugu ára reynslu Sjávarútvegsskóla GRÓ í að aðstoða fátækar þjóðir heims í nýtingu á sjálfbæran hátt lifandi auðlinda sjávar og vatna. „Í þáttunum deila nokkrir af reyndustu sérfræðingum Sjávarútvegsskólans reynslu af vinnu og rannsóknum í samstarfslöndum Sjávarútvegsskólans og ræða mikilvæg atriði sem snúa að framkvæmd á fjórtánda heimsmarkmiði Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun,“ segir Þór Ásgeirsson forstöðumaður Sjávarútvegsskólans. Þættir um fjórtánda heimsmarkmiðið – líf í vatni – eru sýndur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut undir yfirskriftinni: Lífið í sjónum. Fyrsti þátturinn var sýndur síðastliðið miðvikudagskvöld, annar þáttur verður sýndur annað kvöld, og tveir þeir síðustu miðvikudagskvöldin þar á eftir. Að sögn Þórs er meðal annars notast við niðurstöður fyrrverandi nemenda Sjávarútvegsskólans til að skýra betur þau vandamál sem þjóðir glíma við þegar kemur að stjórnun, nýtingu auðlindarinnar og uppbyggingu sjávarútvegs. Í lok hvers þáttar eru settar fram spurningar til að hjálpa og hvetja áhorfendur til að skoða stöðu mála í sínu heimalandi. Sjávarútvegsskóli GRÓ (þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu) er einn fjögurra skóla sem starfa undir merkjum Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Þættirnir eru framlag Sjávarútvegsskólans til framkvæmda á heimsmarkmiði 14, en fyrirheit um slíkt var gefið á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York árið 2017 – UN Ocean Conference – Our Oceans. Þættirnir eru byggðir á rúmlega tuttugu ára reynslu Sjávarútvegsskóla GRÓ í að aðstoða fátækar þjóðir heims í nýtingu á sjálfbæran hátt lifandi auðlinda sjávar og vatna. Skólinn hefur frá árinu 1998 þjálfað fagfólk í sjávarútvegi í rannsóknum, nýsköpun, gagnaúrvinnslu og greiningu, ásamt stefnumótun og síðast en ekki síst samskiptum og kynningum á niðurstöðum. Sjá nánar um innihald hvers þáttar í Heimsljósi á Stjórnarráðsvefnum. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Sjávarútvegur Mest lesið Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent Nafngreina árásarmanninn í Manchester Erlent Hamas liðar vilja ekki afvopnast Erlent Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Erlent Rauk upp úr flugvél Jet2 Innlent Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins Viðskipti innlent Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Erlent
„
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Sjávarútvegur Mest lesið Sagt að njóta ótruflaðrar ástar í Venesúela Innlent „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Látinn fara eftir að hafa neitað Trump um sverð í eigu Eisenhower Erlent Nafngreina árásarmanninn í Manchester Erlent Hamas liðar vilja ekki afvopnast Erlent Segist breyttur maður og biðlar til dómarans Erlent Rauk upp úr flugvél Jet2 Innlent Segja falda launauppbót hjá níu af hverjum tíu stofnunum ríkisins Viðskipti innlent Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Erlent