Fór í fóstureyðingu því hún hafði ekki unnið úr eigin áföllum Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. maí 2021 09:19 Ester Ósk segir frá vanrækslu í æsku og afleiðingum hennar sem varð til þess að hún tók ákvörðun um fóstureyðingu þegar hún komst að þungun. Vísir/Vilhelm „Það er auðveldara að byggja upp sterk börn heldur en að laga brotna einstaklinga,“ segir Ester Ósk.
Frjósemi Tengdar fréttir Ætlaði að hafa allt fullkomið en lenti á vegg og brann út „Heimilið þarf ekki alltaf að vera allt tandurhreint og fínt. Ástin til barnsins, við erum ekki með fiðrildi í maganum allan sólarhringinn alltaf og það er eðlilegt. Það er kannski eðlilegt að þeir sem eru í makasambandi geti ekki farið á jafn mörg stefnumót,“ segir Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur. 13. febrúar 2021 10:01 „Ýtt út í stríð“ eftir sambandsslitin „Í Bandaríkjunum var gerð rannsókn sem sýndi að helmingur skilnaða verður á fyrstu tveimur árunum eftir fæðingu barns og það segir okkur hvað þetta er mikill álagstími,“ segir Anna María Jónsdóttir geðlæknir. 10. febrúar 2021 15:30 „Ég myndi gera hvað sem er í heiminum fyrir þetta barn“ Steinn Stefánsson og Selma Hafsteinsdóttir höfðu í sex ár reynt að eignast barn þegar þau ákváðu að ættleiða. Selma segir að það hafi verið mikill léttir. 4. febrúar 2021 21:31 Mest lesið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Fleiri fréttir Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Sjá meira
Eftir að eiga sjálf erfiða æsku valdi Ester að fara í fóstureyðingu 27 ára gömul í stað þess að eignast barn áður en hún vann úr eigin áföllum. Ester ræddi þessa erfiðu ákvörðun og ástæðurnar fyrir henni í einlægu viðtali í hlaðvarpinu Kviknar. „Ég tala algjörlega frá mínu hjarta og örugglega fyrir hönd margra kvenna sem að hafa þurft að taka þessa ákvörðun, að þetta er alltaf erfiðasta ákvörðun sem þú tekur í lífinu.“ Ester varð ófrísk fyrir nokkrum árum og ákvað þá að hún væri ekki tilbúin að eignast barn þar sem hún hafði ekki unnið úr þeim áföllum sem hún hefur orðið fyrir í lífinu. Hennar eigin uppeldi mótaði hana mikið og fylgdu því tilfinningar eins og skömm, sorg og reiði. „Ég velti þessu svo mikið fyrir mér. Ég kynnti mér hvaða aðstoð býðst fyrir mæður á meðgöngu, hvað varðar sálfræðiaðstoð.“ Ester hugsaði með sér að ef hún myndi taka þessa ábyrgð og eignast þetta barn, leita sér aðstoðar á meðgöngunni, en svo væri kannski allt ennþá í rugli hjá henni með tilheyrandi hræðslu og kvíða. „Mér fannst þetta bara ekki rökrétt“ Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: 18 - Ester Ósk Í lagi að syrgja Hún tók ákvörðunina út frá sjálfri sér, en segir samt að hún vilji verða móðir í framtíðinni. „Þegar þær taka þessa ákvörðun eru þær að forgangsraða fyrir sig og sinn líkama að einhverju leiti. En þarna eins og fyrir mig, var ég svo mikið að hugsa, barnið ég sem lenti í erfiðum aðstæðum sem barn og unglingur. Sem hefði svo innilega viljað fá betri heimilisaðstæður.“ „Ég vildi bara gera betur. Ég vildi að þegar það kæmi að þessu, þá gæti ég verið meira tilbúin til þess að takast á við allt sem þessu fylgir.“ Ester tók þá ákvörðun að vinna í sjálfri sér og áföllunum úr æskunni áður en hún myndi takast á við þetta krefjandi verkefni sem móðurhlutverkið er. „Þessi ákvörðun var bara hárrétt.“ Ester segir að margar stelpur og konur upplifi að þær megi ekki syrgja eftir fóstureyðingu þar sem þær tóku þessa ákvörðun.Vísir/Vilhelm Hún segir að hún hugsi reglulega um þetta en þetta grói með árunum. „Eftirsjáin og sorgin var mikil þegar ég tók ákvörðunina fyrst því að þó að þú takir þessa ákvörðun þá er þetta líka sorg.“ Ester segir að margar stelpur og konur leyfi sér ekki að syrgja og finnist þær jafnvel ekki hafa rétt á að syrgja eftir að hafa tekið þessa ákvörðun. „Þetta er hellings ábyrgð sem þú þarft að taka og ég vildi bara vera tilbúin.“ Hrædd við eigin móður Ester lýsir því þannig að æskan hafi verið á margan hátt flókin vegna þeirra heimilisaðstæðna sem hún bjó við, sem ekki alltaf hafi verið ákjósanlegar. „Ég er alin upp af einstæðri móður sem ég veit innst inni að gerði sitt allra besta. Allir foreldrar gera það, ég efast ekki um það. En það var bara ekki alltaf nóg. Það var vanræksla, það var andlegt ofbeldi og á einhverjum tímapunkti líkamlegt líka.“ Ester segir að það hefði svo sannarlega þurft stuðning inn á heimilið, en aðstoðin hafi ekki verið þegin. Sjálf þorði hún ekki heldur að segja neitt við aðra á þessum tíma. „Ég var rosalega hrædd við þetta,“ útskýrir Ester. Hún óttaðist líka að ef Barnavernd kæmi inn í málið yrðu systkinin hugsanlega aðskilin og vildi hún ekki enda á öðru heimili en yngri bróðirinn. „Hræðslan spilaði þarna mikið inn í, að vera svolítið mikið hrædd við mömmu sína,“ viðurkennir Ester. „Það sem hafði hvað mest áhrif á mig var andlega ofbeldið, sem hefur áhrif á hvernig maður á samskipti.“ Aðstæðurnar og mæðgnasambandið hafði mikil áhrif á sjálfsmynd Esterar í langan tíma. „Mjög lítið sjálfstraust, léleg sjálfsmynd og óöryggi. Þetta eru þau orð sem fylgja mér hvað mest inn í fullorðinsárin.“ Hún segir að það taki mest á að vinna úr og losna við skömmina. Ester er ákveðin í því að verða móðir einn daginn og er ákveðin í því að þá muni hennar börn upplifa öryggi.Vísir/Vilhelm Afbrýðisöm út í falleg mæðgnasambönd Ester hefur náð að vinna mikið í sjálfri sér og áföllunum síðustu fjögur ár. Hún segir í viðtalinu að hún hafi farið á mis við ákveðna hluti í sinni æsku og upplifir sorgartilfinningar gagnvart því í dag. „Ég var mjög mikið í henglum þegar ég áttaði mig á þessu fyrst. Þá sér maður að maður er búinn að fara á mis við helling. Það er aðallega þetta að í fyrsta lagi eru kjarnaviðhorfin þín öðruvísi á við þeirra barna sem að eiga fullkomlega ástríka og umhyggjusama æsku en líka bara sorgin að sambandið sem þú átt við foreldri þitt er ekki eins og allra annarra.“ Afbrýðisemi getur því komið upp þegar Ester sér falleg foreldrasambönd og falleg mæðgnasambönd. „Það er alltaf held ég mikilvægt fyrir stelpur að eiga gott samband við móður sína. Þótt að það geti stundum verið stormasamt því það er alveg eðlilegt líka. En fyrir mig að átta mig á því að ég mun aldrei eiga þetta samband, að eiga gott mæðgnasamband. Það er sorg að átta sig á því og það er sorg líka að lifa með því.“ Ester segir að það sé sér mikilvægt að þegar hún eignist börn, upplifi þau sig örugg. „Ég vil, þann dag sem ég verð foreldri, sjá til þess að sambandið mitt við mín börn einn daginn verði umhyggjusamt, ástríkt og í alla staði eins fallegt og hægt er.“ Kviknar birtist á Vísi og á öðrum efnisveitum eins og Spotify, Eldri þætti má finna hér. Hlaðvarpið Kviknar fjallar um getnað, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. Það fjallar líka um raunina eftir að barnið er komið í heiminn. Eðvarð Egilsson sér um tónlistina í þáttunum en umsjónarkona Kviknar er Andrea Eyland.
Kviknar birtist á Vísi og á öðrum efnisveitum eins og Spotify, Eldri þætti má finna hér. Hlaðvarpið Kviknar fjallar um getnað, meðgöngu, fæðingu og sængurlegu. Það fjallar líka um raunina eftir að barnið er komið í heiminn. Eðvarð Egilsson sér um tónlistina í þáttunum en umsjónarkona Kviknar er Andrea Eyland.
Kviknar Frjósemi Tengdar fréttir Ætlaði að hafa allt fullkomið en lenti á vegg og brann út „Heimilið þarf ekki alltaf að vera allt tandurhreint og fínt. Ástin til barnsins, við erum ekki með fiðrildi í maganum allan sólarhringinn alltaf og það er eðlilegt. Það er kannski eðlilegt að þeir sem eru í makasambandi geti ekki farið á jafn mörg stefnumót,“ segir Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur. 13. febrúar 2021 10:01 „Ýtt út í stríð“ eftir sambandsslitin „Í Bandaríkjunum var gerð rannsókn sem sýndi að helmingur skilnaða verður á fyrstu tveimur árunum eftir fæðingu barns og það segir okkur hvað þetta er mikill álagstími,“ segir Anna María Jónsdóttir geðlæknir. 10. febrúar 2021 15:30 „Ég myndi gera hvað sem er í heiminum fyrir þetta barn“ Steinn Stefánsson og Selma Hafsteinsdóttir höfðu í sex ár reynt að eignast barn þegar þau ákváðu að ættleiða. Selma segir að það hafi verið mikill léttir. 4. febrúar 2021 21:31 Mest lesið Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Lífið „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Lífið Unglingavinnan var tískupallurinn í París Lífið Ice Spice fór á klósettið á OTO Lífið Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Lífið Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Bíó og sjónvarp „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Bíó og sjónvarp Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Fleiri fréttir Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Sjá meira
Ætlaði að hafa allt fullkomið en lenti á vegg og brann út „Heimilið þarf ekki alltaf að vera allt tandurhreint og fínt. Ástin til barnsins, við erum ekki með fiðrildi í maganum allan sólarhringinn alltaf og það er eðlilegt. Það er kannski eðlilegt að þeir sem eru í makasambandi geti ekki farið á jafn mörg stefnumót,“ segir Hulda Jónsdóttir Tölgyes sálfræðingur. 13. febrúar 2021 10:01
„Ýtt út í stríð“ eftir sambandsslitin „Í Bandaríkjunum var gerð rannsókn sem sýndi að helmingur skilnaða verður á fyrstu tveimur árunum eftir fæðingu barns og það segir okkur hvað þetta er mikill álagstími,“ segir Anna María Jónsdóttir geðlæknir. 10. febrúar 2021 15:30
„Ég myndi gera hvað sem er í heiminum fyrir þetta barn“ Steinn Stefánsson og Selma Hafsteinsdóttir höfðu í sex ár reynt að eignast barn þegar þau ákváðu að ættleiða. Selma segir að það hafi verið mikill léttir. 4. febrúar 2021 21:31