„Hvaða „alla“ þú ert að tala um veit ég ekki“ Jakob Bjarnar skrifar 9. apríl 2021 07:15 Helga Vala segir Kára á villigötum í tali sínu um sóttvarnarlög og tilurð þeirra. vísir/vilhelm Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Velferðarnefndar Alþingis, segir Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar vaða í villu og svíma í tali sínu um sóttvarnarlög. Þá skammar hún Kára fyrir að tala dómsstóla niður.
Þetta kemur fram í opnu bréfi Helgu Völu til Kára, sem birtist á Vísi nú í morgun. Helga Vala talar við Kára eins og óþekkan krakka, vísar til viðtals við hann í Kastljósi Ríkissjónvarpsins. Þar segir Helga Vala að hún geti oft haft gaman af Kára en þegar hann hafi farið að tala um niðurstöðu héraðsdóms í því máli sem nýverið lauk, er varðaði lögmæti reglugerðar heilbrigðisráðherra, þá þótti Helgu Völu Kári vera á nokkrum villigötum. Kári sagði að ekki mætti draga annan lærdóm af þeim úrskurði en að dómurum héraðsdóms gætu orðið á mistök. Helga Vala segir að í þessu máli hefði niðurstaðan aldrei geta orðið önnur. „Ég er í þeirri stöðu að vera hvort tveggja löglærð og hluti löggjafans og stýri að auki þeirri nefnd er annaðist vinnslu frumvarps heilbrigðisráðherra til breytinga á sóttvarnarlögum. Frumvarpið kom til þingsins rétt fyrir jól en gestakomur og vinnsla hófust strax á nýju ári eftir að umsagnarferli lauk. Skemmst er frá því að segja að ekkert í texta frumvarpsins, né heldur greinargerð með frumvarpi ráðherra sem skýrir betur einstaka greinar frumvarpsins og lýsir vilja höfundar, benti til þess að ætlunin væri að útbúa heimild til að skylda mætti ferðfólk til dvalar í sóttvarnarhúsi,“ segir Helga Vala. Ekkert rætt um að skylda ætti fólk í sóttvarnarhús Hún rekur að um það leyti sem vinnsla frumvarpsins stóð yfir í velferðarnefnd átti sér stað hörmulegt slys á Djúpvegi í Skötufirði. Umræða hófst um mikilvægi þess að stjórnvöldum bæri skylda til að koma upp sóttkvíarhóteli fyrir þá sem ekki höfðu í önnur hús að venda þegar halda skyldi sóttkví. Var talið að hætta gæti skapast ef ferðafólk teldi sig knúið til aksturs í fjölda klukkustunda beint eftir flug eingöngu vegna þess að þeim bæri að halda rakleitt í sóttkví. Helga Vala segir að í þeirri umræðu kom ekki til álita að húsið yrði notað til að skylda ferðafólk í sóttkví en áfram mátti skylda sýkta einstaklinga, sem neituðu að fara í einangrun, til dvalar í umræddu sóttvarnarhúsi. Stendur það ákvæði enn óhaggað. Helga Vala Helgadóttir gegnir nefndarstörfum í þinginu.vísir/vilhelm „Í lok vinnu velferðarnefndar er útbúið nefndarálit og hafði þá stjórnarmeirihlutinn í nefndinni komist að þeirri niðurstöðu sín á milli að ekki yrði af setningu tveggja íþyngjandi atriða í lög að þessu sinni er varðar útgöngubann og skyldubólusetningu heldur skyldi það bíða heildarendurskoðunar laganna. Þá var sömuleiðis ekkert um það rætt að skylda ætti fólk til dvalar í sóttkvíarhúsi,“ segir í bréfi Helgu Völu. Umræðan sem Kári vísar til átti sér aldrei stað Enginn nefndarmaður né aðrir þingmenn sem tóku til máls ræddu um skyldudvöl í sóttkvíarhóteli nema Helga Vala að sögn sem tilgreindi að ekki hefði verið vilji stjórnarliða að setja inn slíka skyldu. „Hafði ég á orði í báðum umræðum á þingi að mér hugnaðist frekar að setja skýr heimildarákvæði í lögin frekar en að vera í þeirri stöðu, líkt og þá var, að stjórnvöld væru að framkvæma aðgerðir sem þau hefðu ekki lagastoð fyrir. En gott og vel, á þeim tímapunkti nefndi hvorki sóttvarnarlæknir né heilbrigðisráðherra þörf á skyldudvöl í sóttvarnarhúsi, ég aumur stjórnarandstöðuþingmaður fann mig því ekki knúna til að berjast fyrir slíku ákvæði, enda hafði enginn sýnt neinn vilja til þess.“ Ef marka má opið bréf Helgu Völu til Kára vissi forstjóri ÍE harla lítið um hvað hann var að tala í Kastljósi gærkvöldsins.vísir/vilhelm Helga Vala segist ekki vita hvað Kári eigi við þegar hann segir „alla hafa reiknað með að lögin væru sett til að hægt væri að skikka fólk í sóttvarnarhús“ því það var hvorki að finna í frumvarpi ráðherra, nefndaráliti velferðarnefndar né ræddi nokkur einasti þingmaður um það í þingsal. „Hvaða „alla“ þú ert að tala um veit ég ekki, því þessi umræða átti sér ekki stað.“ Óábyrgt að tala dómstóla niður Helga Vala bendir á að þegar um frelsissviptingu sé að ræða, þ.e. þegar fólk fær ekki ráðið ferðum sínum og staðsetningu, verði að vera skýr lagaheimild til staðar og lítið mál að bæta slíkri heimild í upptalningu atriða sem fyrir eru í sóttvarnarlögum. Það var hins vegar ekki gert og á því ber héraðsdómari ekki ábyrgð. „Kæri Kári. Við viljum standa saman að sóttvörnum og við viljum bæði fylgja sóttvarnarlækni en ég vil líka að ráðamenn þjóðarinnar, sem falið hefur verið að fara með framkvæmdavaldið, tryggi að fyrir öllum ákvörðunum sínum sé skýr lagastoð. Það er grundvallaratriði í réttarríki að valdhafar fari að leikreglum sem settar eru til varnar borgurum landsins.“ Að endingu hvetur Helga Vala Kára til að íhuga hvort rétt sé að tala niður dómstóla landsins sem eingöngu hafa það lögbundna hlutverk að dæma eftir lögunum. Hún er ekki viss um að það sé til þess fallið að auka samstöðu meðal þjóðarinnar.
Alþingi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samkomubann á Íslandi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fleiri fréttir Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Sjá meira