„Ef maður hefur ekki gaman, til hvers að vera að þessu?“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. apríl 2021 11:00 Tækniskólinn ætlar sér sigur á Verslunarskóla Íslands í kvöld. tækniskólinn Tækniskólinn og Verslunarskóli Íslands eigast við í fyrri undanúrslitaviðureigninni á Framhaldsskólaleikunum í rafíþróttum í dag. Í seinni undanúrslitaviðureigninni eftir viku mætast Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn við Hamrahlíð.
Tækniskólinn og Verslunarskóli Íslands eigast við í fyrri undanúrslitaviðureigninni á Framhaldsskólaleikunum í rafíþróttum í dag. Í seinni undanúrslitaviðureigninni eftir viku mætast Menntaskólinn í Kópavogi og Menntaskólinn við Hamrahlíð. Keppendur spila í þremur tölvuleikjum: FIFA 21, Rocket League og CS:GO. Til að komast í úrslit þarf lið að fá tvö stig, eða með öðrum orðum að vinna tvær af þremur viðureignum. Í skotleiknum CS:GO eru fimm saman í liði, í fótboltakappakstursleiknum Rocket League þrír saman í liði og í fótboltaleiknum FIFA 21 eru tveir saman í liði. Vigfús Karl Steinsson er þjálfari Tækniskólans og fékk það hlutverk að setja saman lið fyrir Framhaldsskólaleikana sem eru haldnir í fyrsta sinn í vetur. „Skömmu eftir að ég fékk símtal frá Þorvaldi félagsmálafulltrúa skólans hóf ég skráningu í útsláttakeppni og eftir þónokkuð marga leiki var ég kominn með lið,“ sagði Vigfús í samtali við Vísi. Hann segir andann í liði Tækniskólans til mikillar fyrirmyndar. „Stemningin í liðunum var eiginlega frá byrjun frábær og ég vissi að þetta væri að fara ganga vel. Við byrjuðum á að finna styrkleika og veikleika hvors annars og vinna með þá ásamt því að ræða hluti eins og hvernig við viljum koma fram við hvort annað og reyna að forðast hegðun sem hefur slæm áhrif á liðsandann. En það besta við þetta allt saman er að metnaðurinn er svo mikill að æfingarnar ganga smurt fyrir sig,“ sagði Vigfús. En hver er lykilinn að sigri í viðureign kvöldsins? „Tala saman, treysta á hvort annað og æfa saman. Leynikryddið er líka að hafa gaman af þessu. Ef maður hefur ekki gaman, til hvers að vera að þessu?“ sagði Vigfús sem er ekki í vafa hvort liðið er sigurstranglegra í kvöld. „Það liggur augum uppi, Tækniskólinn að sjálfsögðu!“ sagði Vigfús án þess að hika. Fyrirliðar liðs Tækniskólans eru Lárus H. Ólafsson, straNger (CS:GO), Emelía Ósk Grétarsdóttir, viQueen (Rocket League), og Björgvin Ingi Ólafsson, bjorgvino (FIFA 21). Sýnt beint verður beint frá viðureign Tækniskólans og Verslunarskólans á Stöð 2 eSport í dag og hefst útsending klukkan 18:30. Sérfræðingar í setti eru ekki af verri endanum, þau Kristján Einar Kristjánsson, Donna Cruz, Króli og Egill Ploder.
Rafíþróttir Framhaldsskólaleikarnir Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Enski boltinn Uppgjörið: Thun - Víkingur 3-0 | Töturlegt í Thun Fótbolti Afríska knattspyrnusambandið styður Infantino einróma Fótbolti Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Enski boltinn Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Körfubolti Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Íslenski boltinn NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Enski boltinn