Mega byrja 1. apríl í Þingvallavatni Karl Lúðvíksson skrifar 25. mars 2021 09:35 Flottur urriði af Kárastöðum. Mynd Fish Partner Nú ber svo til tíðinda fyrir þá sem hreinlega elska að veiða stóru urriðana við Þingvallavatn að veiði verður heimil á minnsta kosti tveimur svæðum frá og með 1. apríl.
Nú ber svo til tíðinda fyrir þá sem hreinlega elska að veiða stóru urriðana við Þingvallavatn að veiði verður heimil á minnsta kosti tveimur svæðum frá og með 1. apríl. Þetta er að okkur vitandi í fyrsta skipti sem það verður leyft að hefja veiðar svo snemma og það er ekkert dregið úr þegar það er fullyrt að um feykilega spennandi möguleika er að ræða. Bæði hefur aðsókn á góð svæði verið suma daga það mikil að færri komast að en vilja, sem og að það er spennandi að sjá hvernig veiðin er á þessum tíma. Þau svæði sem við höfum fengið staðfest frá leigutaka að opni 1. apríl eru Kárastaðir og Villingavatnsárós en það er Fish Partner sem heldur utan um sölu veiðileyfa á þessum svæðum. Bæði svæðin eru rómuð fyrir góða veiði og það er einmitt á fyrstu dögum og vikum sem veiðin hefur oftast verið best.
Stangveiði Mest lesið Jólagleði SVFR verður haldin á föstudagskvöld Veiði Besti tíminn laus í Soginu Veiði Forréttindi að veiða þessa risa urriða Veiði Vefsalan hjá Lax-Á að fara í gang Veiði 104 sm stórlax á land í Stóru Laxá Veiði Eins og í lygasögu Veiði Væntanlegar breytingar á veiðisvæðum SVFR sumarið 2017 Veiði VSK á veiðileyfi? Veiði Mikið sótt í 2-3 stanga árnar Veiði Sogið greinilega að taka við sér Veiði