Skjálfti fimm að stærð sunnan við Fagradalsfjall Vésteinn Örn Pétursson skrifar 14. mars 2021 12:36 Svæðið sunnan við Fagradalsfjall. Vísir/Vilhelm Snarpur jarðskjálfti varð klukkan 12:34. Samkvæmt Veðurstofu Íslands var skjálftinn fimm að stærð og átti upptök sín í Sunnanverðu Fagradalsfjalli.
Skjálftinn fannst vel víða um land, á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og víðar, eftir upplýsingum sem fréttastofu hafa borist. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að um sé að ræða stærsta skjálfta sem orðið hefur á svæðinu síðan 12. mars, fyrir tveimur dögum, en þá varð skjálfti sem einnig var fimm að stærð klukkan 07:43. Samkvæmt tilkynningunni hefur enginn órói mælst í kjölfarið. Annar minni jarðskjálfti varð á svipuðum slóðum kl. 12:51. Samkvæmt frumniðurstöðum Veðurstofunnar mældist hann 3,2 að stærð. Talsverð virkni í nótt Í nótt mældust sjö skjálftar að stærð þrír eða meira á Reykjanesskaga, sá stærsti 4,2. Sá varð klukkan 4:40. Hann átti upptök sín á um 3,6 kílómetra dýpi um 2,7 kílómetra suðsuðvestur af Fagradalsfjalli klukkan 4:40 samkvæmt sjálfvirkum mælingum Veðurstofu Íslands. Aðrir stærri jarðskjálftar sem mældust í nótt voru á bilinu 3,0 til 3,7 að stærð. Upptök þeirra allra voru sunnan við Fagradalsfjall. Síðustu tvo sólarhringana hafa tæplega 2.200 jarðskjálftar mælst. Af þeim hafa 56 verið stærri en þrír.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira