Greinileg gliðnun hefur myndast í landslagi suður af Keili. Þetta eru um þrjátíu sentímetrar sem ekki er talið að hægt sé að skýra aðeins með jarðskjálftavirkni. Málið er í skoðun hjá Veðurstofunni.
Grindavíkurbær lét gera sjálfstæða rýmingaráætlun þegar jarðhræringar fóru að gera vart við sig fyrir um ári - en hættan hér er líka talin nokkuð meiri en annars staðar á Reykjanesinu. Hér finna íbúar fyrir skjálftunum af fullum krafti og en ekki hafa borist upplýsingar um slys eða skemmdir.
![](https://www.visir.is/i/9EA9B1CA3912CD742B0ABB0DABF4705155281A8CFBD39C62FE752D2957B265EC_713x0.jpg)
Samkvæmt hraunhermilíkani er líklegast að norðurhluti mið Reykjanesskagans verði undir, fari að gjósa. Líkur á að hraun fari til suðurs hafa hins vegar minnkað. Unnið er að gerð rýmingaráætlana í Reykjanesbæ og í Vogum en slíkar áætlanir eru til í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu.
„Ef það þarf að rýma svæðið, það fer alltaf eftir því hvernig gos yrði ef út í það færi, sem við auðvitað vonum ekki, það er mjög fjarlægur möguleiki. En við þurfum að vera tilbúin og þá að færa til fólk ef ástandið yrði þannig,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.
![](https://www.visir.is/i/F89261E46E1274AA6E590F464F6EA79CC3B2EF29AFE9A2ADF3C1A893EEBD3B15_390x0.jpg)
Þá er erlenda samfélagið á Suðurnesjum nokkuð stórt en þar vottar fyrir ótta hjá fólki. Unnið er að gerð leiðbeininga á fleiri tungumálum.
„Við skynjum ótta á meðal þeirra. Það eru hér útlendingar sem hafa aldrei upplifað jarðskjálfta áður,“ segir Kjartan.
Jákvætt og eðlilegt að pakka í töskur
Íbúar á Suðurnesjunum taka skjálftunum með ró en þó er fólk sem hefur pakkað í töskur og tilbúið að þurfa að yfirgefa heimili sín.
„Ég veit ekki um neinn sem hefur forðað sér en ég veit um einhverja sem hafa haft tilbúnar einhverjar töskur, kannski lyf og eitthvað slíkt sem fólk er háð, sem er bara jákvætt og eðlilegt. Aðalatriðið og mikilvægasta í þessu öllu saman er að fylgja leiðbeiningum,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
![](https://www.visir.is/i/9B9755965CFA9A95041F4BB2A1EC56E16B876EE97E91E57F8E5795A56AE47A31_390x0.jpg)
Hræddur við lækkun og hækkun landsins
Mikil eldvirkni hefur verið á Reykjanesskaga en yfir þúsund ferkílómetrar af landi eru undir hrauni. Þó engin gos hafi verið síðan seint á þrettándu öld hafa verið hér miklar jarðhræringar og alltaf viðbúið að fari að gjósa. Það veit Sæmundur Þórðarson sem hefur lifað þá tímana tvenna, en hann er níutíu og fjögurra ára og hefur búið á Vatnsleysuströnd frá árinu 1932. Hann segist hafa upplifað öflugri jarðskjálfta - en aldrei hrinur eins og þessar.
„Til dæmis þegar þetta hús var byggt, þá komu dálitlir skjálftar hérna 1951 eða 1953. Það var meira en þetta sem var núna hugsa ég en það var bara þessi staki skjálfti,“ segir Sæmundur.
Hann hefur ekki upplifað hrinur eins og þessar.
„En þetta er í gangi á stóru svæði, það hlýtur að enda með einhverjum ósköpum.“
Sjávarstaða muni breytast ef til goss kemur - sem sé sviðsmynd sem verði að taka inn í reikninginn.
„Þetta er náttúrulega vá í sjálfu sér og þetta getur breytt talsverðu fyrir okkur ef eitthvað skeður sem við sjáum ekki fyrir. Ég er alveg eins hræddur við lækkun eins og hækkun. Ef að húsin okkar myndu lækka eitthvað hérna væri sjórinn kominn upp að dyrum,“ segir Sæmundur Þórðarson, íbúi á Vatnsleysuströnd.