Svandís ræddi tillögur Þórólfs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. febrúar 2021 11:18 Svandís hefur oftar en einu sinni kynnt aðgerðir innanlands að loknum ríkisstjórnarfundi á föstudegi. Vísir/Vilhelm Ráðherrar í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sitja nú á reglulegum föstudagsfundi í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu þar sem tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra eru meðal annars á dagskrá. Þórólfur skilaði minnisblaði sínu með tillögum til ráðherra seint í gærkvöldi. Líklegt má telja að Svandís muni bregðast við tillögum sóttvarnalæknis að loknum fundi í dag. Núverandi reglugerð um aðgerðir innanlands vegna kórónuveirufaraldursins gildir til 17. febrúar. Þórólfur sagði á upplýsingafundi í gær að hann reiknaði með að leggja til einhverjar afléttingar en vildi ekki ræða þær nánar. Vísir verður í beinni útsendingu frá Ráðherrabústaðnum og ræðir við Svandísi og mögulega fleiri ráðherra að loknum fundi. Í vaktinni hér að neðan verður greint frá tíðindum um leið og þau liggja fyrir. Uppfært: Útsendingunni er lokið en hér að neðan má sjá viðtal við Svandísi um tillögur Þórólfs.
Þórólfur skilaði minnisblaði sínu með tillögum til ráðherra seint í gærkvöldi. Líklegt má telja að Svandís muni bregðast við tillögum sóttvarnalæknis að loknum fundi í dag. Núverandi reglugerð um aðgerðir innanlands vegna kórónuveirufaraldursins gildir til 17. febrúar. Þórólfur sagði á upplýsingafundi í gær að hann reiknaði með að leggja til einhverjar afléttingar en vildi ekki ræða þær nánar. Vísir verður í beinni útsendingu frá Ráðherrabústaðnum og ræðir við Svandísi og mögulega fleiri ráðherra að loknum fundi. Í vaktinni hér að neðan verður greint frá tíðindum um leið og þau liggja fyrir. Uppfært: Útsendingunni er lokið en hér að neðan má sjá viðtal við Svandísi um tillögur Þórólfs.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira